Viljinn - 01.10.1942, Blaðsíða 6
- 6 -
»
AÐ MÆTA VONBRIGÐUM
ÖIl erum við dæmd til að mæta vonbrigðm í einhverri
mynd á lífsleiðinni. Þau fara eldci í manngreinarálit. Þau
heimsækja hina lítillátu,eneinnig þá, sem skipa sætt spott-
aranna. En vegna þess, að við vitum að þeirra er von, ætt-
um við að búa okkur undir að taka á móti þeim. Það, sem
kemur óvænt, eyðileggur hamingju lífsins, en það, sem við
vitum, að muni koma, ætti ekki að geta gert mikið tjón.
Það er hinn óvænti stormur á hafinu, sem veldur skip'unxim
tjóni.
Vonbrigði geta verið nógu þungbær, þó að við höfum
búið okkur undir að mæta þeim, en þau eru margfalt verri,
hafi enginn undirbúningur verið gerður. Sárasti broddur
þeirra er burt tekinn hjá þeim, sem veit að þau muni koma
í einhverri mynd - og sem einnig gerir sér ljóst hvernig
og hvers vegna þau ráðast að mönnum. - Vonbrigði kom af
eftirtöldum ástæðum:
1. Þú keppir að ákveðnu marki. Því framsæknari sem
þú ert, því hættara
er þér við að mæta vonbrigðum. Það skip, sem ávallt er í
þurrkví, lendir aldrei í hrakningum. Hinn athafnalausi og
lati, sá sem ekki keppir aðœinu ákveðnu marki, mun vissu-
lega ekki mæta þeim erfiðleikum, sem verða á vegi hins
framsækna,
Sá, sem ávallt keppir að háu takmarki, getur allt af
átt von á því að mæta vonbrigðum, en þegar hann nær tak-
marki sínu, gleymir hann erfiðleikunum, sem að baki eru, og
hann nýtur þeirrar gleði, sem óþekkt er af þeim, sem láta
berast af stravunnum.
Sért þú t.d, uppfinningarmaður, brautxyðjandi á ein-
hverju sviði eða siðbótarmaður, munt þú vissulega mæta
margvíslegum vonbrigðum, sem aðrir koxnast hjá. En takir
þú þeim réttilega, munu þau hjálpa þér áfram. Snillingar
verða þeir einir, sem ekki láta yfirbugast af erfiðleik-
unum, heldur vinna bug é þeim. Að láta yfirbugast af erfið
leikunum er að tapa, að sigra þá er að vinna.
V I L J I N N