Viljinn - 01.10.1942, Blaðsíða 9

Viljinn - 01.10.1942, Blaðsíða 9
- 9 - BOÐSKAHJR TIL ÆSKUNNAR E.G. White Möguleikar heimilisuppeldisins. Framtíð 'þjóðfélagsins er lögð í hendur œskunni og börnunum, og æskan og börnin .eru aftur undir heimilinu komin. Skortur á réttu heimilisuppeldi kemur fram í stórum stíl í sjúkdómum, ejmid og glæpum, sem leiða bölrun yfir mannfélag- ið. Ef heimilislífið væri hreint og sannleikanum samkvæmt, mundu börnin, sem koma undan hendi "þess, rerðá undir það búin að mæta ábyrgðarhlutum og hættum lífsins. En sú breyt- ing, sem þá yrði á heiminum! Virðing fyrir foreldrum og ást á þeim. Þeir sem vilja fylgja Kristi,. yerða að láta hann búa í hjörtum sínttm og setja hann þar til öndvegis. Þeir verða að sýna anda hans og lunderni í heimilislífi sínu, og sýna þeim kurteisi og velvild, sem verða kunna á vegi þeirra- Margur hver, sem játar að hann sé kristinn, veit þó ekki hvað þetta boðorð þýðir: "Heiðra skaltu föður þinn og móður þína", 9g veit þar af leiðandi ekki frernur, hvað hitt þýðir: "Svo að þér vegni vel og þú verðir langlífur í landinu, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér." Æskumenn vorir játa, að þeir séu í tölu þéirra, sem halda boðorð Guðs, og þó vanrækja margir þeirra og brjóta fimmta boðorðið, og hin ríkulega blessun, sem heitin er þeim, sem hlýða þessu boðorði og heiðra föður og móður, getur ekki fallið þeim í skaut, Þeir munu aldrei komast til hinnar nýju jarðar, þar sem þeir geta búið eilíflega, nema þeir iðrist synda sinna og bæti ráð sitt og lunderni fyrir náð Krists. Þeir, sem heiðra ekki né elska foreldra sína, munu heldur ekki heiðra og elska Guð. Þeir sem láta undir höfuð leggjast að heiðra guðelskandi foreldra sína, hlýða eigi Guði og þess vegna geta þeir eigi vænst þess, að þeir komist inn í fyrirheitna landið. V I L J I N N

x

Viljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.