Viljinn - 01.10.1942, Blaðsíða 10

Viljinn - 01.10.1942, Blaðsíða 10
- 10 - Ákvörðun til hlýðni. Hér í tímanum á æskan að skera úr um sín eilífu forlög. Og eg vildi brýna 'það fyrir yður, að íhuga 'það boðorð, sem Guð hefur tengt þetta fyrirheit við: "Svo að þú verðir langlífur í landinu, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þór." Börn mín, þráið þið eilífa lífið? Virðið þá og heiðrið foreldra yðar Hafir þú syndgað með því að auðsýna þeim eigi hlýðni, farðu þá að bæta fyrir liðna txmann. Þú getur ekki leyft þér að taka aðra stefnu, því að það yrði þér sama sem að týna eilífa lífinu. Rannsakari hjartnanna veit hvernig afstaða þín er gagnvart forsildrum þínum, því að hann hefur vegið siðferðisgildi þitt þitt á gullvog hins himneska helgidóms. 6, játaðu vanræksluna, sem þu hefur sýnt for- eldrum þínum, játaðu skeytingarleysi þitt þeim til handa og fyrirlitningu þína á Guðs heilaga boðorði. Hjörtu foreldra yðar hafa barist af blíðri samúð til yðar, og getið þér svo tekið ást þeirra með köldu vanþakk- læti? Þau elska sálir yðar, vilja að þér verðið hólpnir. En hafið þér ekki oft fyrirlitið heilræði þeirra, og gengið yðar götu - farið að yðar vilja? Hafið þér ekki farið að einræði yðar, þótt þér 'vissuð, að svo heimskuleg stefna yrði Guði eigi velþóknanleg? Margir foreldrar hafa gengið harmþrungnir til grafar sakir vanþakklætis barna þeirra og sakir þess, að á skorti að þau sýndu þeim þá virðingu, sem bar. AÐ MÆTA VONBRIGÐUM (Frh. af 8. síðu) yfir að þær rætast ekki gera okkur kærulaus gagnvart hinum minni skyldum, sem næst okkur liggja. Við skyldum hugdjörf horfast í augu við vonbrigði þau og erfiðleika, sem verða á vegi okkar, og svo halda éfranu Lífið getxir leikið menn hart, en sá einn hefur tapað, sem misst hefur trúna á það, að hann geti staðið upp að nýju og náð takmarki sínu. Alfred L- Murray. V I L J I N N

x

Viljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.