Viljinn - 01.10.1942, Blaðsíða 12
- 12 -
"Eg er sá, er skapaði "þig, og eg vil nú endurskapa ■þig"
isvaraði röddin,
Þá gaf litla dauðvona. hveitikornið sig á vald skapara
isíns - og vissi nú ekki af sér framar,
Það var morgunn einn mjög snemma vors, að örlítill
grænn frjóangi skaut höfðinu upp úr blautri moldinni, Sólin
skein glatt svo að rauk upp úr votlendinu- Og hátt uppi í
hláa hiraingeymnum sungu óteljandi lævirkjar.
Hveitikornið, þ>ví að það var einmitt frjóanginn - lit-
aðist um, frá sér numið af gleði, Því var þá reyndar skil-
að aftur til lifanda lífs, til sólarljóssins og lævirkja-
söngsins - það átti að fá að lifa á ný.
Og ekki það eitt. 1 akrinum allt í kring voru aðrir
grænir frjóangar - heill sægur - og þar þekkti það aftur
bræður sína og systur. Þá fór um litlu jurtina ólgandi
lífsfylling, og henni fannst sem hún yrði að vaxa sem hæst
upp í skínandi himininn og láta blöðin sxn breiða á móti
honum ástararmana - svo glöð var hún og innilega þakklát.
Og það var eins og sami þakklætisfögnuðurinn lyfti lævirkj-
unurn svo hátt upp í himinihn sem hægt var að komast, og því
hærra sem þeir flugu, því hreimfegurri og hreinni var söng-
ur þeirra - og rö'ddin, sem nú kom ofan frá en ekki að neðan,
mælti:
"Deyi ekki hvéitikornið, sem fellur í jörðina, verður
það einsamalt, en deyi það, ber það mikinn ávöxt."
Johannes Jörgensen
+ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +++ + + + -(. + + + + + + + + + + ++++•!
+ +!
+ VILJINN Blað Aðventæskunnar á íslandi.
+ Kemur út einu sinni á mánuði.
+ +
+ Verð: Kr. 2,50 árgangurinn. - Gjalddagi er 15. maí.
| Afgreiðslan er í íngólfsstræti 19, pósthólf 2é2, Rvík. +
+ Ritstj. og ábm.: Júl. Guðmundsson, Bárustíg 15 Vestm. +
+ +
+ + + + + + + + + ++ + + + + + + + ++ -f+ + + + + + + + + + + + + + ++ -*- + + + + + + + + + + + + + 4- + + + + + + +