Austurglugginn


Austurglugginn - 26.04.2013, Page 12

Austurglugginn - 26.04.2013, Page 12
12 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 26. apríl Austurglugginn hefur fengið góðfúslegt leyfi ungrar konu frá Neskaupstað til að birta úr köflum ferðasögu hennar. Eins og gert var í gamla daga, er hér um að ræða fram- haldssögu með nýjum kafla í hverju blaði. Austurglugginn vonar að með þessu uppátæki, fái hann að vera gluggi þeirra sem rýna út fyrir sjón- deildarhringinn og bíður spenntur eftir fleiri ferðasögum. Þessi saga er sögð af Svönu Heimisdóttur. Bréfin sem ég sendi aldrei heim Frá því að ég var lítil hefur mig alltaf dreymt um að sjá heiminn. Ég hef setið ófáar klukkustund- irnar við eldhúsborðið hjá ömmu á Blómsturvöllum og skoðað gamla Atlasinn. Ég sá fyrir mér, mig á ferðalagi með bakpoka, hatt og í sandölum. Það hefur aldrei verið til það land eða staður sem mig hefur ekki langað að sjá. Ferðalagið byrjaði fyrir alvöru fyrir 4 árum, þegar ég var 19 ára. Á þessum árum hef ég ferðast til 24 landa. Ég ákvað eftir framhaldsskól- ann að sækja um háskólanámsstyrk í Bandaríkjunum. Í gegnum íslenska ævintýra-ferðaskrifstofu í Reykjavík, pappírsvinnu með eyðublöð í tuga- tali, óteljandi símtöl og fundi í sendi- ráði Bandaríkjanna, þá fór ég af stað. Ég flutti frá Neskaupstað til New York. Alein! Í New York var ég á aðlögunarhót- eli fyrstu 3 dagana, ásamt 150 öðrum stelpum allstaðar að úr heiminum. Frá fyrsta degi var ég ekki lengur ein, eins og ég var búin að búa mig undir. Ég hef komist að því á öllum mínum ferðalögum að það eru alltaf miklar líkur á því að hitta einhvern sem er að upplifa það sama og maður sjálfur. Það er sjaldan að maður sé einn á ferð, ef maður ferðast með opnum huga. Árið sem ég bjó í New York var ótrúlega góð byrjun á ferðalagi mínu. Ég ferðaðist minnst einu sinni í mán- uði og sá mikið af Bandaríkjunum. Ég nýtti mér tækifærið og fór með rútu til Kanada. Ég og ein þýsk vinkona mín keyptum okkur ódýra miða frá China Town á Manhattan. Þegar við mættum í rútuna voru 70 Kínverjar og við sem höfðum bókað ferðina. Ég lærði Meistari Jakob á kínversku í þeirri ferð. Ég fór líka til Mexikó í vetrarhretinu og mæli hiklaust með því. Ég eignaðist vini allstaðar að úr heiminum, og síðan hef ég reynt að nýta mér hvert tæki- færi til þess að heimsækja þá, og fá þá í heimsókn sjálf. Sem sveitastelpa úr Neskaupstað var ýmislegt sem ég þurfti að læra, og það fljótt. Ég fékk bíl og þurfti því að venjast umferðarljósum, keyra á 5 akreina hraðbrautum, læra á lest- arkerfið. Matvörur voru ókunnugar. Allt var nýtt. Samt er það ótrúlegt hvað maður er fljótur að aðlagast nýjum aðstæðum. Ég man þegar ég tók fyrst eftir því að ég var farin að hugsa á ensku. Ég var í búðinni og hugsaði ,,I have to remember to buy ketchup’’. Það var sérstök tilfinning. En það gerðist sjálfkrafa, í aðlögun- arferlinu. Lengstan tíma tók mig þó að kalla nýja heimilið mitt ,,heima’’. Það var ekki náttúrulegt fyrir mér. ,,Heima’’ var hjá mömmu og pabba í Neskaupstað. Ég tók stundum þvílíkan útúrdúr og sagði: ,,ég er að fara, þú veist, þangað þar sem ég bý núna’’. Það var skrýtið að kalla stað, sem var tímabundið hemili, ,,heima’’. Eftir nokkra mánuði varð húsið mitt í New York ,,heima’’ og hjá mömmu og pabba ,,heimheima’’. Framhald í næsta blaði. Það er kominn tími á raunhæfar aðgerðir. Aðgerðir til að lækka skatta, aðgerðir til að lækka skuldir heimilanna og aðgerðir til að koma atvinnulífinu í gang. Nú getur Ísland tekið nýja og betri stefnu. Það er kominn tími á breytingar Sjálfstæðisflokkurinn í Norðausturkjördæmi NÁNAR Á 2013.XD.IS 1. sæti Kristján Þór Júlíusson Akureyri 2. sæti Valgerður Gunnarsdóttir Laugum í Reykjadal 3. sæti Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Reyðarfirði

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.