Vélstjóraritið - 01.07.1936, Page 10

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Page 10
VÉLSTJÓRARITIÐ 2 ur. Hingað til hafa þeir og byggst á kunnugleik og gagnkvæmu trausti félags- manna. En með fjölgun félagsmanna breytist aðstaðan í þessum efnum. Hætt- an á innbyrðis sundrung eykst. Stjórnin og aðrir forgöngumenn fjarlægjast hina almennu félaga, vegna þess hve sjaldan þeir eiga kost á að talast við um áhuga- málin, og samvinnan verður slitróttari. Á þessu á hið nýja rit að ráða bót. Það er auðsætt, að „Ársritið“ nægir ekki lengur. Til þess að bæta úr þessari þörf hefir félagið nú ráðist í að gefa út mánaðar- rit það, er hér birtist. Er þess að vænta, að félagarnir taki því vel og láti ekki standa á sér að leggja því lið. Menn þurfa að gera sér ijóst, að það er vegna hinna dreifðu félaga, að í þetta er ráð- ist-. Og gagnsemi ritsins fer að mestu eftir því, hvort þeir færa sér það í nyt. Ritið er fyrst og fremst vettvangur fyr- ir umræður um félagsmál. Að sjálfsögðu flytur það, eins og „Ársritið“ hefir gert, skýrslur og reikninga og tilkynningar frá félagsstjóminni. Ennfremur verða í því greinar um vélfræðileg efni, eftir því sem ástæður leyfa. Stærð ritsins er áætl- uð fyrst um sinn 1 örk á mánuði, en verður að sjálfsögðu hagað eftir því, sem efni eru til, og þörf krefur. Til þess að fyrirbyggja allan misskiln- ing skal skýrt frá því, að upp verður tekin sú regla, að birta aðeins greinar, undirritaðar með fullu nafni höfundarins. Og að sjálfsögðu gerir ritstjórinn kröfu til þess, að allrar kurteisi sé gætt í orða- vali, þó um ádeilugreinar sé að ræða. Um efnisval og skoðanir eru menn vitanlega sjálfráðir, að svo miklu leyti sem það á við málefni stéttarinnar, enda ber hver höfundur ábyrgð á sínum skrifum. Það FÉLflGSMAL SKYRSLfi UM 5TflRFSEMI VÉLSTJÓRflFÉLflG5 ÍSLflNDS ÁRIÐ 1935-1936 Á þeim hefir ekki orðið Fjármálin. nein stórvægileg breyting. Bókfærðar eignir fél. hafa nokkuð aukist. Innheimtan hefir gengið aálítið betur en árið áður, og er það góðs viti í versnandi árferði. Sem betur fer, er atvinnuleysið enn ekki farið að þjaka okkar stétt neitt verulega, þó nokkrir félagar hafi, því miður, töluvert af því að segja. Þar sem nú eru væntanlegar tillögur verður að vera stéttinni metnaðarmál, að ritið sé vel úr garði gert, enda ekki á- stæða til að efast um, að svo geti orðið. Góðir félagar! Ritið á að vera okkur í funda stað, og í dálkum þess ræðum við og berum saman bækur okkar um dægur- mál stéttarinnar. Takið því penna í hönd í tómstundunum. Skrifið upp hugleiðing- ar ykkar um félagsmálin, um fræðileg efni, um starfið við vélarnar á sjó og landi, um viðburði og um úrræði á al- vörustundunum o. fl. Sendið síðan grein- arnar ritstjóranum, og hann mun koma þeim á framfæri. Látið það ekki aftra ykkur, þó þið séuð ekki vel sterkir í réttritun; það er ekkert tiltökumál. Fé- lagið mun tryggja sér málfróðan mann til þess að slípa af agnúana, sem á kunna að verða. En rúmsins vegna þurfa grein- arnar að vera stuttar og gagnorðar, enda fer jafnan best á því. Hallgr. Jónsson.

x

Vélstjóraritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.