Vélstjóraritið - 01.07.1936, Blaðsíða 11

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Blaðsíða 11
3 VÉLSTJÓRARITIO um nokkura lækkun félagsgjaldanna, sem eflaust verða samþykktar, er vonandi, að félagsmenn geri sér far um, að standa í skilum framvegis. Reynsla er nú fengin fyrir því, að tekjur félagssjóðsins nægja ekki fyrir kostnaðinum við félagshaldið; verður ekki ekki hjá því komist, að styrktar- sjóður greiði skrifstofukostnaðinn að sín- um hluta. Þetta hefir hann og gert hin síðari ár, en tillag hans hefir verið oi lítið, og þarf því að auka það. Þá má geta þess, að það fer töluvert í vöxt, að skrifstofan annist innheimtu á kaupeftir- stöðvum félagsmanna hjá útgerðarmönn- um, er illa geta borgað, eða tregðast við að borga. Hefir þetta án efa komið sér vel fyrir þá félaga, sem hlut eiga að máli. Útistandandi skuldir voru í fyrra kr. 18990,35, en um síðustu áramót krónur 18145,51, og er það kr. 844,84 lækkun. Þó þetta sé ekki mikil lækkun, þá er hún spor í rétta átt, þegar einnig er tekið til- lit til vaxtar félagsins. Nokkuð meiri festa er og að smákomast á innheimtuna, þó enn vanti mikið á, að vel sé. Þá hefir skuldum nokkurra félaga verið breytt í víxillán, og innheimtast þær betur með því móti. Innborguð iðgjöld hafa numið rúmum 4000 kr. meira en árið áður, og stafar það sumpart af fjölgun félaga. Veittir styrkir voru kr. 174,05 minni en árið áður. En gjafir voru aftur á móti kr. 181,50 meiri; eru þær teknar úr fé- lagssjóði. Voru þær árið, sem leið, 500 kr. til einnar ekkju, og 400 kr. til jólagjafa, en þær eru orðnar nokkurnveginn föst venja. Bókfærðar eignir styrktarsjóðsins hafa aukist um 8111,15 kr., og er hann nú alls 100955,33 kr. Aukning Valdimarssjóðsins er 618,26 kr., og er hann við áramótin 17451,63 kr. Þá er Húsbyggingarsjóður- inn með 63,44 kr. hækkun og er að upp- hæð 1651,29 kr. Félagssjóður hefir aftur á móti rýrnað um 1693,95 kr. og er nú 6768,54 kr. Alls nema bókfærðar eignir féiagsins 126826,79 kr. Með samþykkt síðasta að- Fasteigna- alfundar um það, að tak- og víxillán marka hverja lánveitingu úr styrktar- við 3000 kr. til hvers, er sjóði. lánastarfseminni í raun- inni komið inn á nýjar brautir. Það hefir reynst svo, enda fyrir- fram vitað, að erfitt er að fá 1. veðrétt í fasteign fyrir svo lágum upphæðum, og jafnvel ekki 2. veðrétt heldur. Nú er féiagsstjórninni það áhugamál, að tryggja lánin sem best, og telur hún ekki gerlegt að lána út á 2. veðrétt, nema þar sem rnjög lítið hvílir á 1. veðrétti. Tel ég naumast líklegt, að þessi samþykt verði til þess, að fleiri félagar njóti góðs af lánastarfsemi félagsins. Þá hafa víxillánin samanlögð náð því hámarki, sem ákveðið er. Mörg þeirra eru lág og endurnýjast tiltölulega fljótt, og ætti því jafnan að vera eitthvað af þeim til reiðu. Sökum annríkis gat Ellert Nýr endur- Árnason ekki tekið þátt í skoðandi. endurskoðun reikning- anna að þessu sinni. Var því í samráði við hinn endurskoðandann, Þorstein Loftsson, farið fram á það við Erling Þorkelsson, að hann ynni að end- urskoðuninni; varð hann við þeim tilmæl- um. Endurskoðunin er nú orðin svo mik- ið verk, að ekki má velja aðra til þess en þá, sem nokkurn tíma hafa afgangs frá daglegum störfum.

x

Vélstjóraritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.