Vélstjóraritið - 01.07.1936, Side 12

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Side 12
VÉLSTJÓRARITIÐ 4 Svo kölluð samvinnuút- Ráðningar gerð hefir verið reynd á í skiprúm. allmörgum stöðum, síðan halla tók undan fæti fyrir einkaútgerðinni. Því miður hefir þetta af ýmsurn ástæðum ekki viljað lánast. Það nýjasta í þessum efnum er það, að einstaklingar eða nokkrir menn, og stund- um jafnvel bæjar- og hreppsfélög, festa sér skip til útgerðar. Er síðan gerð krafa til þess, að einkum yfirmenn á skipunum leggi fram svo eða svo mikið hlutafé í fyrirtækið, enda fái þeir ekki atvinnu að öðrum kosti. Nú væri ekkert við þessu að segja, ef allt væri vel í garðinn búið, skipið gott og ekki of dýrt, menn sam- hentir, og þeim trygð þátttaka í stjórn fyrirtækisins o. s. frv. En þetta mun nú ekki ávalt vera svo. Jafnvel sveita- og og' bæjarfélög leggja nú kapp á að ná eignarhaldi á skipum til útgerðar í at- vinnubótaskyni, og er það þá vitanlega aðalmarkmiðið, og getur verið vel rétt- lætanlegt, þó vonin sé nauðalítil um, að framlagt fé í fyrirtækið gefi beinan arð., Nokkrir félagar hafa af þessum ástæð- um verið sviptir atvinnu. Þeir hafa ekki viljað leggja fram fé í þessi vafasömu fyrirtæki, eða ekki haft það til. Aðrir fé- lagar hafa þá boðið betur, lagt nokkuð af mörkum og hlotið atvinnuna. Þetta er mjög varhugavert. Oftast mun hið fram- lagða fé ganga til þurðar og verða með því einskonar meðgjöf eða kauplækkun. Hér er stofnað til samkeppni um atvinn- una á mjög óviðeigandi hátt, því starf- hæfni kemur ekki til greina, en báðir keppendurnir munu venjulega skaðast. Ég vil vekja athygli félagsmanna á þessu sérstaklega. Það er illa farið, ef atvinnu- tregðan verður til þess að koma á eins- konar undirboði. Því þó að svo sé látið heita, að kauptaxta félagsins sé fylgt, þá verður hið framlagða hlutafé einskonar fvrirfram greidd afföll, þar eð hagnaðar- vonin, að minnsta kosti á gömlum skip- um og gengnum úr sér, er nú sem stend- ur mjög lítil. Það er að mínu áliti full nauðsyn á, að þetta ráðningamál sé tekið fastari tökum. Skrifstofan þarf að fá vitneskju um þess- ar vafasömu ráðningar, einkum þar sem vélstjórum er þröngvað til framlaga, og er þá ekki vonlaust, að hægt sé að hindra þessi undirboð. Þeir, sem álíta sig órétti beitta, þurfa að kvarta í tíma til skrif- stofunnar, og mundi þá tekinn upp sú að- ferð, að gera þá kröfu til þeirra, sem vildu ráða sig á skip, sem deilt væri um, að þeir öfluðu sér áður vitneskju á skrif- stofunni. Ekki hefir félagsstjórnin Launakjör séð sér fært að halda til togara- streitu tillögum þeim til vélstjóra. nýrra samninga, sem lagð- ir voru fram í fyrra. Liggja til þess ýmsar ástæður. Útaf sarn- þykt, sem gerð var á félagsfundi í vetur um mannfjölgun í vélarúmi, náðum við tali af tveim fulltrúum frá F. í. B. og ræddum við þá um málið. Varð árangur þess ekki annar en sá, að við fengum fyrirheit um það, að lögskráð skyldi verða upp á sömu kjör og áður. En um kjarabætur í nokkurri mynd eða aukinn mannafla þýddi ekki að ræða. Ég hefi rætt þetta mál við nokkra tog- aramenn, og yfirleitt fundist þeir vera nú þeirrar skoðunar, að á meðan ástand ílotans batnaði ekki frá því, sem nú er, þá mundi naumast gerlegt að bera fram kröfur um aukin fríðindi. Hins ber þó að gæta, að með hinum nýju og breyttu vinnuháttum við verk-

x

Vélstjóraritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.