Vélstjóraritið - 01.07.1936, Blaðsíða 13

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Blaðsíða 13
5 VÉLSTJÓRARITIÐ unina, þ. e. lýsis- og mjölvinnslu, kemur nýtt viðhorf. Fiskimjöl og lýsi eru nú orðin svo stór hluti af aflaverðmæti sumra skipanna, að það hlýtur að verða okkar áhugamál, að koma þeim verðmæt- um undir þann lið, sem % greiðast af. Þess má geta, að uppsagnir munu hafa litlar verið árið, sem leið. Þó skipin hafi legið, þá hafa vélstjórarnir unnið á skipi fyrir hið ákveðna kaup. Stöndum við þar betur að vígi en aðrir skipverjar. Liggur til þess fyrst og fremst sú ástæða, að vinna er jafnan mikil í skipunum, og því enginn hagur að því að láta vélstjórana fara. 0g þá er uppsagnarfresturinn í samningunum. Er hann okkur stórmikils virði, síðan útgerð skipanna fór að verða, svona slitrótt. Að því er snertir vinnuna í skipunum, á meðan legið er, þá er það höfuðskilyrði fyrir samninga í framtíðinní, að hún sé rækt vel. Það þarf að sannast bókstaf- lega, að vélstjórarnir séu, eins og við liöldum fram, betri og ódýrari en verk- stæðismenn. Þar sem vinna og viðgerðir eru, eins og mér er sagt, að sé í togur- unum, undir svo ströngu eftirliti, þá hlýt- ur þetta að koma í Ijós. Nú er ekki ólík- lcgt, að nokkur breyting verði á útgerð togaranna smám saman, og ný verkefni komi í Ijós. Þessi öldudalur, sem við erum nú í, líður hjá, og betri tímar koma. En hvað sem framundan er, og hvernig sem fé- laginu tekst að búa í haginn fyrir stétt- ina, þá megum við ekki missa sjónar á því, að það er starf hinna einstöku og rnatið á framkvæmdum þeirra, sem allt byggist á; það er undirstaðan. Samningur tókst árið, sem Samningar leið, við Kaupfélag Eyfirð- við K. E. A. inga um launakjör vél- stjóranna á eimskipinu Snæfelli. — Eru aukaatriði samningsins þau sömu og í samningunum við Eimskipafél. Reykja- víkur, en mánaðarkaup, lítið eitt lægra, er miðað við stærð skipsins. Það er kr. 567,00 fyrir 1. vélstjóra og 435,00 fyrir 2. vélstjóra. Var haft til hliðsjónar, að ódýrara er að búa á Akureyri. Var það og aðalkrafa skipseiganda, að sú aðstaða j-rði tekin til greina. Annaðist varafor- rnaður samningsgerðina, og var yfirvél- stjórinn með í ráðum. Er mér ekki ann- að kunnugt, en að þeir, sem við samn- ingana eiga að búa, séu sæmilega ánægðir. Styrktarsjóður þessi var Styrktarsjóður stofnaður með reglugerð togara- 22. nóv. 1928 af togara- vélstjóra. eigendum, og skyldi ið- gjald vera 100,00 kr. á mann eða mest 200,00 kr. á skip. Er sjóðurinn nú orðinn um 35000,00 kr. inn- borgaðar, og auk þess eru útistandandi um 2—3 ára iðgjöld flestra skipanna. í leglugerðinni er kveðið svo á, að þegar sjóðurinn er orðinn 25000 kr., megi veita fé úr honum til þurfandi sjóðfélaga. Sjóðurinn hefir verið frá byrjun í vörslu Tómasar Jónssonar lögfræðings, nú borgarritara, og hefir hann innheimt ið- gjaldið. Gekk innheimtan sæmilega, þar til nú fyrir 2 árum. En nú virðist allt komið í sjálfheldu. Útgerðarmenn telja sér illa fært að greiða iðgjaldið sökum fjárskorts. Þá hefir stjórn sjóðsins í nokkur ár ekki verið starfhæf sökum þess, að F. í. B. hefir ekki tilnefnt nýja menn. En þeir, sem valdir voru í byrjun, eru nú ýmist farnir úr F. f. B. eða hættir að starfa þar. Eftir endurtekin tilmæli frá okkar félagi voru í vetur tilnefndir í sjóð- stjórnina þeir Geir Thorsteinsson og Þor- geir Pálsson, og ætti nú sjóðstjórnin að

x

Vélstjóraritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.