Vélstjóraritið - 01.07.1936, Blaðsíða 16

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Blaðsíða 16
VÉLSTJÓRARITIS S sér sem fyrst til starfsmannsins og leita samninga. Eins og kunnugt er, starf- Ný aði í fyrra sumar stjóm- vélgæslulög. skipuð nefnd að endur- skoðun vélgæslulaganna og siglingalaganna, og átti einn vélstjóri sæti í nefndinni. Fékk nefndin breytingartil- lögur frá stjórn vélstjórafélagsins til at- hugunar. Munu þær ekki hafa þótt nýti- legar, því þeirra gætir næsta lítið í hinum nýju lögum. Fyrir haustþingið skilaði nefndin frumvarpi til nýrra siglingalaga (vélgæslulögin nú feld inn í siglingalög- in). Var það flutt þar að tilhlutun ráðu- neytisins, en varð ekki útrætt. f vetur var það svo aftur flutt og náði þá sam- þykki og varð að lögum, lítið breytt. Hér skal ekki farið út í það, að skýra áorðnar breytingar frá eldri lögum, enda koma lögin nú fyrir almenningssjónir innan skamms, og mörgum er frumvarp- ið kunnugt frá því í vetur, að það var til umræðu hér á fundi. Eru sumar breyt- íngarnar án efa til bóta, en aðrar, ef til vill, vafasamar. Fær reynslan nú að skera úr því. Óneitanlega gætir þó nokk- urs ósamræmis í lagasetningu þingsins um vélgæslustörfin. f fyrra voru sam- þykkt lög um vélgæslu, þar sem náms- kröfurnar voru svo litlar, að vélstjórar yfirleitt munu hafa talið setningu þeirra ganga hneyksli næst. í ár koma svo önn- ur lög um svipað efni. Sem betur fer, af- nema þau hin fyrri. En ekki er ég í neinum vafa um, að mörgum muni þykja þau ganga full langt um námskröfur, þegar þess er gætt, að hér er og verður ekki fyrst um sinn um annað en smá skip og vélar að ræða. Þá gerði og nefndin breytingartillögur um nám við vélstjóraskólann til sam- ræmis við siglingalögin, og samþ. þingið þær. Að undirlagi Vélstjórafélagsins og rafvirkjafélagsins var kosin nefnd tii þess að gera athugasemdir við skóla- frumvarpið. Samdi hún allmargar breyt- ingartillögur í samráði við kennara skól- ans, er sendar voru þinginu, en ekki voru þær teknar til greina. • Einn félagsfundur var Fundir. haldinn á árinu eða síðan á síðasta aðaifundi, og 14 stjórnarfundir. Þess má geta, að nokkrir erfiðleikar hafa komið í ljós um stjórnar- fundahald sökum þess, hve fáir af stjómendunum eru starfandi í landi. Gefur það bendingu um, að við tilnefn- ingu í stjórn framvegis verði að hafa það í huga, að stjórnin sé að jafnaði starfhæf, þ. e. að stjórnarfundi sé hægt að halda nokkurnveginn reglulega, 1—2 í mánuði. Hallgr. Jónsson. SKÝR5LR RlTflRfl Tala félagsmanna 1. jan. 1935 var 172. Á árinu hafa 2 menn dáið, þeir Bjarni Ámundason og Samúel Guðmundsson. f félagið hafa gengið 10 menn á árinu, þeir Jón E. Jónsson, Ársæll Jóhannsson, Friðgeir Grímsson, Ásgeir Magnússon, Guðmundur Torfason, Guðmundur Mar- íusson, Lárus Scheving, Sveinn G. A. Kragh, Páll Ágústsson, Lárus Jóhannes- son. Strikaðir út 31. des. vegna skulda þeir Jón Alexanderson og Hjörtur Kristjáns- son. Tala félagsmanna í árslok 178. Gísli V. Guðlaugsson, ritari.

x

Vélstjóraritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.