Vélstjóraritið - 01.07.1936, Page 20

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Page 20
VÉI.ST.ÍOR ARTTTÐ 12 umönnun. Hann var tilfinninganæmur og hræðslugjarn og þjáðist stundum vikum saman af höfuðverk. Vegna þessa las- leika gat hann ekki samþýðst öðrum börnum og gat framan af ekki sótt skóla, en móðir hans kendi honum að lesa, og íaðir hans kendi honum að skrifa og reikna. Hann lék sér helst að því að teikna og búa til ýmsa smáhluti, er hann i'ékk verkfæri og efni á verkstæði föður síns, en hans skemtilegasti leikur er sagt aö hafi verið sá, að mölva verkfæri sín og smíðisgripi og smíða nýja hluti úr brotunum. Þrátt fyrir vanheilsu sína framan af þroskaðist James furðu fljótt og fór snemma að hugsa sjálfstætt; eru marg- ar sögur til úr æsku hans, sem sanna, að svo hafi verið. Einna frægust er sagan um það, er hann sat við sjóðandi teketil og lék sér að því að athuga eiiminn, hvernig hann lyfti lokinu, er troðið var í stútinn o. s. frv., en föðursystir hans kom að honum og ávítaði hann harðlega fyrir slæpingsskapinn. Þegar James fór að fara í skóla, gekk honum námið treglega framanaf, og var álitinn fremur tornæmur, en þegar hann var 13—14 ára og var kominn í latínu- skóla, fóru gáfur hans að lcoma í ljós. Honum gekk vel í tungumálum, en hans besta námsgrein var stærðfræðin; í henni var hann jafnan sá færasti í bekknum. Frístundir sínar notaði hann mikið til smíða og smíðaði þá ýmis leikföng, en mesta ánægju hafði hann af því, að lag- færa og athuga ýmis nákvæm tæki, svo sem áttavita, mæliboga og önnur sigl- ingatæki, og komst brátt í mikið álit fyr- ir dugnað sinn og nákvæmni á þessu sviði. Það er sagt, að faðir hans hafi átt all- mikið bókasafn, og að James hafi lesið allt, sem hann náði í, og þegar einn af kunningjum hans benti honum á, að hann ætti að vera vandlátari í vali þeirra bóka, er hann læsi, svaraði hann: „Ég hefi aldrei lesið bók, sem ekki hefir veitt mér þekkingu og ánægju“. Þegar Jarnes Watt var 18 ára gamall, var hann sendur til Glasgow til þess að læra smíði nákvæmra tækja. Hann varð sjálfur að finna sér lærimeistara, en í þeim bæ var þá aðeins einn gleraugna- smiður, sem lifði á því að selja gleraugu og veiðiáhöld, stilla hljóðfæri og gera við gieraugu og önnur einföld tæki. Hjá hon- um vann James í nokkurn tíma, en mark- mið hans var að læra smíði nákvæmra rnælitækja, og með það fyrir augum íékk hann árið 1755 leyfi föður síns til þess að fara til London. í London voru, að sjálfsögðu, margir slíkir smiðir, en samkvæmt reglum þeirra nriáttu þeir ekki taka lærisvein með minna en 7 ára námssamningi, og svo löngum tíma vildi James ómögulega eyða ? námið. Þessum reglum var þó venju- lega ekki stranglega fylgt, og James komst bráðlega í kynni við lærimeistara, ?ð nafni John Morgan, sem tók hann til náms í eitt ár með álitlegri meðgjöf. James féll vinnan, og námið gekk vel, en hann undi þó ekki hag sínum í höfuð- borginni. Heilsa hans var líka fremur tæp um þessar mundir, svo hann hvarf gftur heim til Greenock haustið 1756. Þegar heim kom, komst hann brátt til heilsu aftur og ætlaði þá að setjast að í Glasgow sem áhaldasmiður, en smið- irnir gátu komið því til leiðar, að hann fékk ekki leyfi yfirvaldanna til þess. Urðu honum þetta sár vonbrigði, sem vonlegt var, en nú má segja, að forsjón-

x

Vélstjóraritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.