Vélstjóraritið - 01.07.1936, Qupperneq 25

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Qupperneq 25
17 VÉLSTJÓRARITIP hafnalífi, en fáir munu hafa unnið svo niikilvæga sigra í lífsbaráttunni og getað að lokum litið yfir jafn mikilfenglegt æfistarf sem hann. James Watt lést 19. ágúst 1819, 83 ára að aldri, og er grafinn í Handsworth, en í Westminster-kirkjunni í London er honum reistur veglegur minnisvarði. Á fótstallinn er þetta letrað: Eigi til að forða við gleymsku því nafni, scm uppi mun vera, meðan lögð cr stund á friðsamlega iðju, heldur til að bera því vitni, að maimkynið hcfir lærí að hciðiTi þá menn, sem mestar verðskulda þakkimar, reisti konungurinn, ráðgjafar hans og margir aðalsmenn vorir og ríkisborgarar þetta minnismerki iim James Watt, sem neytti snilldargáfu sinnar, er hann hafði þroskað með visindarannsóknum, til endurbóta á eimvélinni og jók með því við auðæfi föðurlands síns, gerði mennina máttugri og ávann sjálfum sér heiðurssess meðal ágætustu vísindaiðkara og sannra Velgerðanranna vcraldar. Fæddur í Greenock 1736. Andaðist í Heathfield í Staffordshire 131!). Þorst. Loftsson. Þegar gerð var heyrinkunn breyting á félagsstjóminni á aðalfundinum síðasta, datt mér í hug máltækið: „Þess ber að geta, sem gert er“. En ég vil bæta við: „En lengst ber að minnast þess, sem vel er gert og af góðum hug“. G. J. Fossberg, sem nú fór úr stjórn- inni eftir langt, og mér er óhætt að segja gott starf, hefir átt hlut að mörgum nytjamálum, sem félagið hefir haft með höndum, og jafnan lagt gott til. Eru til- lögur hans jafnan vel hugsaðar og glöggar og hljóta því að vekja athygli. Er mér Ijúft að minnast þess, hve Foss- berg hefir oft á stjórnarfundum tekist að greiða úr þrætum og auðvelda af- greiðslu mála. Þeir, sem eiga þannig hlut ao málum, verða jafnan áhrifaríkir og marka spor, sem lengi gætir. Fossberg á vissulega þökk skilið fyrir öll sín ómök fyrir Vélstjórafélagið. Ekki er ég heldur í neinum vafa um það, að Fossberg mun eftirleiðis jafn boðinn og búinn til þess að taka þátt í fé- iagsstörfum, þó ekki eigi hann sæti í stjórninni, og fáir munu áhrifameiri um vöxt félagsins okkar og viðgang, en hann. Hallgr. Jónsson.

x

Vélstjóraritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.