Vélstjóraritið - 01.07.1936, Page 27
1. mynd.
Tillögur um að nota forhleðslu komu
fram fyrir mörgum árum, og hafa til-
raunir með drátt forhleðsluvélarinnar
sýnt, að gastúrbínan er áhrifameiri en
nokkur önnur vél, sem reynd hefir verið
til þessa, bæði að því er snertir öryggi og
notagildi. Kostir þeir, sem náðst hafa
við forhleðsluna, eru jafnvel enn meiri
við katla en mótora. Auk þess sem
minka má brunahólfið, þá minkar stærð
hitaflatarkerfisins um helming, vegna
hærri þrýstings og meiri hraða á
reykgasinu.
Stutt lýsing á Veloxkatli, hjálpartækj-
um hans og búnaði.
Fyrsta mynd sýnir Veloxketil með til-
heyrandi tækjum, og línuritið fyrir neðíin
sýnir hitastig og þrýsting brunaloftsins
á mismunandi stöðum.
Brensla eldsneytisins fer fram í glóð-
holinu (2). Inn í það streymir brunaloft
og eldsneyti um brennarann (1). Loftið
með 35 lbsD” þr. og eldsneytið (olían)
með um 300 lbs □” þrýstingi. Gasteg-
undirnar veita nokkru af hitamagni sínu
með geislum inn um útveggi eimispípn-