Vélstjóraritið - 01.07.1936, Blaðsíða 30

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Blaðsíða 30
VÉLSTJÓRARITIÐ 22 1. mynd. Öryggislokar fyrir 50—100 atm. þrýsting. Á lokahúsið með öryggislokanum e er festur svonefndur stilliloki, D—H. Er hann mjög lítill að flatarmáli, og verður því auðvelt að stilla hann nokkurnveginn nákvæmt. Er lokanum haldið að sætinu á venjulegan hátt með fjöður. Hinn eig- inlegi öryggisloki, C, hefir hæfilegan flöt og þrýstist að sætinu með sjálfum ketil- þrýstingnum frá A., þ. e. alveg öfugt við það, sem venja er til. Sé lokinn vel slíp- aður, ætti hann með þessu móti að verða fullkomlega þéttur. Á lokastönginni er lít- il bulla, F, og rennur hún í strokk. Efri endi þessa strokks er í sambandi við lok- ann D eftir pípunni E. Ef nú lokinn D lyftist og sleppir út eimi, fer sá eimur ekki út í loftið, heldur eftir pípunni E yf- ir á bulluna F. Er hún lítið eitt stærri að flatarmáli en öryggislokinn C og megn- ar því að ýta honum niður. Eimurinn streymir nú út í loftið um C og B, þar til þrýstingurinn fellur, og jafnvægi er náð. Lokinn D fellur að sætinu, og álagið á bulluna F fellur, með því að sá eimur streymir út um smágöt. Fjöðrin G dreg- ur lokann C að sætinu, og eimþrýsting- urinn heldur honum þéttum, eins og fyr er sagt. Önnur mynd til vinstri sýnir öryggis- loka af nýju gerðinni, en til hægri gömlu gerðina, sem þurfa mundi fyrir samskon- ar þrýsting og ketilstærð. Eins og mynd- irnar sýna, eru hinir nýju lokar allmiklu minni og meðíærilegri og ættu að vera léttari að stilla. Hæðarglös. Þriðja mynd sýnir hæðarglös fyrir há- þrýstikatla. Er það málmgrind með inn- greyptum glertöppum í tveim röðum, og eru glertapparnir þannig feldir í grindina, að vatnshæðin sést ávalt í gegnum þá. Þá eru glertapparnir þannig í laginu, að ketilþrýstingurinn spennir þá þétta, (sjá gegnumskurðarmyndina til hægri). V atnshæðarstillir. Katlar með litlu vatni þurfa mjög ná- kvæma og hraðvirka temprun á vatns- hæðirmi. Einkum er það afar nauðsynlegt, að réttri vatnshæð sé nákvæmlega haldið á hinum nýju háþrýstikötlum, sem taka

x

Vélstjóraritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.