Vélstjóraritið - 01.07.1936, Side 31

Vélstjóraritið - 01.07.1936, Side 31
23 VÉLSTJÓRARITIÐ mjög lítið vatn. Temprun með flothylki er ekki nógu nákvæm fyrir þessa katla. Þegar eimnotkunin vex, fellur þrýsting- urinn í yfirkatlinum; við það kemur ólga í vatnið, meiri en áður, og hefir þau á- SchniHB lxrif á flothylkið, að það lokar í stað þess að opna, þar til vatnið sjatnar. En þá opnar það og hleypir tiltölulega köldu vatni inn á ketilinn; eimingin í yfirkatl- inum minkar, og stillirinn opnar enn meir og eykur kælinguna í katlinum. Flothylk- ið vinnur með öðrum orðum svo treglega, að því er ekki að fullu treystandi til þess að stilla vatnshæðina á þessum kötium. Fjórða mynd sýnir stillitæki, sem auk flothylkisins hefir þanpiötu (Membran), og verður stilling veitilokans einkum fyr- ir áhrif þanplötunnar. Stillilokinn fyrir veitivatnið er merkt- ur 1, 2 er kúluloki, 3 er þanplata, 4 er tengipípa milli eimholsins og þanplötu- hússins; 5 er eimholið (útstreymisop, trektmyndað), 6 er loki, sem stillir álagið á 1 (veitilokann); 7 er yfirhlaupsloki. Við 8 og 9 er hægt að hreyfa stengurnar að flothylkinu með hendinni. Stillilokinn (1) er gerður sem hol bulla, misgild, grennri að neðarí, og að ofan rennur hún í strokki. í rúminu framan við lokann (bulluna) er þrýstingurinn jafn veitivatnsþrýstingnum, og er það nokkru hærra en þrýstingurinn á katlinum. Opið á lokanum er stillt þannig, að þrýsting- urinn innan við hann (ketilþrýstingur- inn) er dálítið lægri en veitivatnsþrýst- ingurinn framan við lokann. Þessi þrýst- irigsmismunur veldur í rauninni' hreyf- ingu lokans, sem annars er álagslaus. Með kúlulokanum (2) má þó breyta álag- inu á 1. Dæluþrýstingurinn getur t. d., sé bull- an lek, leitað á efri hlið lokans og ýtt honum niður að sætinu. En jafnskjótt og lokinn hreyfist niður á við, rekst kúlu- lokinn (2) á stöng og spyrnist út úr grópi á loka (1) miðjum; við það jafnast þrýstingurinn milli dælu og ketils. Nú get- ur dæluþrýstingurinn, sem vinnur á lok- ann, opnað hann eftirleiðis, þar til kúlu- lokinn lokar á ný. Á þennan hátt vinna lokarnir, þar til jafnvægi hefir náðst, og \'eitivatnið kemur með jöfnum straumi inn á ketilinn. Kúlulokinn hreyfist með dragstöng af fíothylkinu og þanplötunni (3). Aðal- hreyfinguna fær hann þó frá þanplötunni, og er hún einnig tengd við flothylkið með stöngum.

x

Vélstjóraritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vélstjóraritið
https://timarit.is/publication/1718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.