Vélstjóraritið - 01.07.1936, Qupperneq 40
VÉLSTJÓRARITIÐ
32
að færa yfir á hann nokkurn hluta þess
álags, sem á hinum hvíldi.
Lýsið því, hvernig þetta fer fram, til-
greinið þau mælitæki og önnur áhöld,
sem notuð eru við þetta, og gerið lauslega
tengimynd, er sýni sambönd þeirra.
3. verkefni: Lýsið „Wheatstons“-brú og
gerið grein fyrir því, hvernig hún er not-
uð til viðnámsmælinga.
(Til úrlausnar þessara verkefna eru
veittar fjórar klukkustundir).
íslenskur stíll.
Úrlausnartími 3 klst.
Lýsið einhverjum fögrum stað.
SKIFflSMÍÐI 1935
Fullsmíðuð skip á Norðurlöndum.
Mótorskip Eimskip
* H !© -u Ui © W j Rúm- lestir E -G <u T Tala | Hestöf) Rúm- i lestir É jji -a KO V T.
Danmörk 28 91302 121674 13,4 5 5000 5671 11,3
Sviþjóð 27 92998 105189 13,7 4 39250 3261 23,í.i)
Noregur 3 10950 13t48 13,8 13 15450 13784 11,5
Finnland 1 400 670 9,0 2 1800 1612 12,5
Samtals 59 186650 240981 24 61500 24328
Um síðustu áramót voru í smíðum í
heiminum, að undanteknu Rússlandi, 393
verslunarskip, samtals 1543153 rúmlestir
brutto, þar af 214 mótorskip, samtais
897336 rúml. = 58,2%, 167 eimskip,
samt. 639369 rúml. = 41,4% og 11 véla-
laus, samt. 6248 rúml. = 0,4%.
i) öll þessi skip tilheyra sænska hernuin og- eru
með túrbinu-vélum; þau eru öll hraðskreið og'
gengur eitt þeirra 39 sjómilur á kl.st.
VÉLSTJÓRARITIÐ
Útgefandi: Vélstjórafélag íslands
Ritnefnd: Þorsteinn Loftsson (ritstjóri)
Hallgrímur Jónsson
Kjartan T. örvar
Afgreiðsla á skrifstofu Véistjórafélagsins
í Ingólfshvoli. Opin 11—12 og 16 — 18
alla virka daga.
Sími 2630 Pósthólf 425
Prentsmiðjan Acta
Um síðustu áramót voru í smíðum 538
skipsvélar, þar af 342 mótorar, samtals
840261 hestöfl, 49 eimtúrbínur, samtals
362883 hestöfl, og 147 eimbulluvélar,
samt. 224560 hestöfl. Hér eru aðeins
taldar þær vélar, sem smíðaðar eru undir
umsjón flokkunarfélaga.
Á fyrsta ársfjórðungi yfirstandandi árs
voru af nýjum verslunarskipum heimsins
67% mótorskip, miðað við reg. tons.
(Samkvæmt Tekn. Tidskr.).
VERKFALL í EELGÍU
Frá AIOM hefir oss verið skrifað, að
yíirmenn á belgiskum skipum liafi gert
verkfall. Þessi ákvörðun var tekin eftir
að allar samningstilraunir um að fá laun
sín og önnur hlunnindi bætt, voru strand-
aðar. — Að sjálfsögðu má enginn fé-
lagsmaður í Vélstjórafélagi Islands sækja
um eða þiggja atvinnu á belgiskum skip-
um, meðán verkfallið stendur yfir.
Stjórnin.