Skessuhorn - 24.08.2022, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 202214
Um síðustu áramót setti Guðgeir
Guðmundsson á Akranesi sér það
takmark að fara 41 sinni niður á
hjóli frá öðrum hvorum toppnum
á Akrafjalli, áður en hann yrði fer-
tugur. Í allan vetur er hann búinn
að hjóla upp og niður fjallið í sól,
snjó, myrkri, þoku, rigningu, logni
og hvassviðri enda allra veðra von
á fjallinu. Mánudaginn 8. ágúst átti
hann eftir tíu ferðir til að ná mark-
miðinu og hefur síðan þá farið frá
mánudegi til miðvikudags eina til
tvær ferðir á dag til að ná að ljúka
við ferðirnar áður en hann yrði fer-
tugur. Blaðamaður Skessuhorns
var með í för í ferð númer 39 síð-
asta þriðjudag í liðinni viku í fyrri
ferð dagsins ásamt nokkrum vinum
Guðgeirs upp á Háahnúk sem er
um 550 metrar á hæð.
Guðgeir þarf að reiða hjólið sitt
alla leið upp á topp og það er alls
ekki auðvelt. Stundum þarf hann
að halda á hjólinu sem er um 15
kíló í mesta klöngrinu og erfið-
astur er fyrsti hluti ferðarinnar þar
sem fyrsta brekkan er mjög brött.
Gangan á þriðjudag gekk mjög
vel í góðu veðri og var hópurinn
kominn upp á topp fjallsins rúm-
lega klukkutíma eftir að gangan
hófst. Blaðamaður fékk að prófa á
leiðinni að reiða hjólið hjá félaga
Guðgeirs til að hann fengi smá
hvíld enda hann að fara í fyrsta
skiptið og komst að því að það er
alls ekki auðvelt að vera með hjól
í eftirdragi, hvað þá alla leið upp á
toppinn. En þetta tókst allt saman
á endanum og skemmtileg kvöld-
stund með góðum hópi á þessu fal-
lega kvöldi.
Guðgeir og félagi hans hjóluðu
síðan á fullri ferð niður Akrafjallið
og mættum við honum síðan aftur
á leiðinni upp við rætur fjallsins
og ekki bilbug á honum að finna.
Hann lauk síðan takmarkinu síð-
asta miðvikudag og náði þar með
sinni 41. ferð. Guðgeir varð fer-
tugur síðasta föstudag og fagn-
aði því með fjölskyldu og vinum.
Skessuhorn óskar honum hjartan-
lega til hamingju með afmælið og
að ná langþráðu takmarki sínu með
glæsibrag. vaks
Síðastliðinn fimmtudag var Snæ-
fellsbær fyrsta sveitarfélagið sem
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
ráðherra háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra var við vinnu
á landsbyggðinni. Hefur hún sett
stefnuna á fjarvinnu á ýmsum
stöðum á landsbyggðinni og var
Snæfellsbær fyrstur í röðinni. Var
Áslaug Arna með vinnuaðstöðu
í félagsheimilinu Röst. Að vinnu
lokinni var farið í heimsóknir og
skoðunarferðir um Snæfellsbæ og
fólk á förnum vegi tekið tali. Með-
fylgjandi myndir eru frá þessum
degi en eins og sjá má var gestur-
inn heppinn með veður.
af
Guðgeir glaðbeittur á toppnum í
síðustu ferðinni.
Ljósm. Sigurður Þorvaldsson
Fór á hjóli 41 ferð upp og niður Akrafjall
Ferðafélagar Guðgeirs á leiðinni á toppinn. Ljósm. vaks
Listamennirnir Bjarni Sigurbjörnsson og eiginkona hans Ragnheiður Guðmunds-
dóttir lýstu verkum sýnum og aðstöðu á Blómsturvöllum fyrir ráðherranum.
Ráðherra flutti
vinnustöð sína
vestur á nes
Áslaug Arna á Ástarbrautinni á Hellissandi.
Hópurinn við innganginn í Sjóminjasafnið á Hellissandi.
Með listamanninum Jo Klay sem er að vinna við verkið
Vitinn sem mun verða fimm metra hátt.
Heilsað upp á heimalninginn sem er vinsæll meðal gesta í
Sjóminjasafnu á Hellissandi.