Skessuhorn - 24.08.2022, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2022 19
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Bílás, Smiðjuvöllum 17, 301 Akranes www.bilas.isbilas@bilas.is 431 2622 Við tökum vel á móti þér...
Mikið úrval af nýjum og notuðum bílum
Það kostar ekkert að skrá bílinn hjá okkur
Bjóðum gott pláss á bílaplani Bíláss fyrir sölubíla
Við erum umboðsmenn fyrir bílaumboðin Öskju og Heklu
Mikil sala
og gott kaffi
Við erum með bílinn fyrir þig!
Atvinna í boði
Móar Cottage í Hvalfjarðarsveit óska eftir að ráða
starfsmann í 50% til 60% starf við ræstingar,
sveigjanlegur vinnutími.
Um er að ræða þrif á gistihúsum.
Upplýsingar í síma 655-0506 eða 824-9004
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Um mánaðamótin október/nóvem-
ber kemur út bók sem allir Skaga-
menn verða að lesa, sumsé bókin
100 ára knattspyrnusaga Akraness.
Höfundur hennar er Skagamaður-
inn og sagnfræðingurinn Björn Þór
Björnsson og hefur hann víða leitað
fanga svo að útkoman verður bæði
skemmtileg (þó svo að stundum
komi skúrir) og fræðandi. Fjöl-
margt kemur á óvart og margir
eru kallaðir út á völlinn, karlar og
konur. Þá prýða bókina margar
myndir sem mikill fengur er að.
Það er von þeirra sem standa að
bókinni að hún fái góðar viðtökur
og hefur söfnun áskrifenda gengið
vel. Enn er hægt að skrá sig fyrir
áskrift að bókinni og kostar hún
7.500 kr. Nöfn viðkomandi munu
þá birtast aftast í bókinni undir
„Baráttukveðjum til knattspyrnu-
fólks á Akranesi“. Hægt er að ger-
ast áskrifandi í netfanginu: holar@
holabok.is eða hringja í síma 692-
8505 eftir klukkan 16 á daginn.
Gefa þarf upp fullt nafn (nöfn ef
fleiri en einn úr sömu fjölskyldu
vill vera með í baráttukveðjunum),
heimilisfang og kennitölu, en
áskriftargjaldið verður innheimt í
gegnum heimabanka.
Það er Bókaútgáfan Hólar sem
gefur bókina út og auðvitað væri
það vel þegið ef þið létuð þessi tíð-
indi berast sem víðast, með því að
deila á facebook og láta þau vita
sem kynnu að hafa áhuga á bók-
inni, en eru kannski ekki dagsdag-
lega á netinu.
Koma svo! Áfram ÍA!
-fréttatilkynning
Kynslóðir komu saman þegar Akraneshöllin var vígð haustið 2010. Ljósm. mm
100 ára knattspyrnu-
saga Akraness
Fjölbreytt fuglalíf
á svæðinu
Einnig kom fram gagnrýni fundar-
gesta um að með fyrirhugaðri fram-
kvæmd væri ruðst inn á svæði þar
sem fyrir er fjölbreytt fuglalíf og
stórt varpland og fæðuöflunarsvæði
fyrir fjölda fuglategunda.
Kári kvaðst þó ánægður með
fundinn í heild. „Ég var alveg búinn
að gera ráð fyrir því að það væru
skiptar skoðanir á þessu verkefni.
Þetta er fallegt svæði og fólk hefur
mjög sterkar skoðanir og tilfinn-
ingar gagnvart því eins og mörgum
svæðum hérna í kring. Það sem
mér fannst eiginlega bara best var
að það komu margir góðir punktar
frá fólki. Mjög góðar ábendingar
og athugasemdir sem munu klár-
lega koma inn í þetta ferli og móta
það. Þannig að margt af því sem fólk
sagði er mjög hjálplegt.“ Varðandi
fuglalíf á svæðinu hefur Kári þetta
að segja: „Það er fjölbreytt fuglalíf
þarna og það þarf að hafa augun á
því. Þetta er bara partur af því að
gera þetta, að láta skoða undirlendið
og skoða griðastaði fugla og allt það
þannig það sé bara haft í huga þegar
farið er í allar framkvæmdir og allt í
kringum þetta, að við pössum upp
á fuglana, en við erum ekki að gera
starfsemi sem per-se er hættuleg
fuglum.“
Hvernig á að kynda?
Ekkert heitt vatn er á svæðinu og
verði baðlónið að veruleika verður
það fyrsta baðlónið á Íslandi þar sem
hita þarf allt vatn upp en það verður
gert með varmadælu. Fundargestir
höfðu nokkrar áhyggjur af því og þá
var m.a. spurt um orkuþörf baðlóns-
ins og kostnað við kyndingu. Ekki
fékkst skýrt svar við því hver orku-
þörf baðlónsins yrði nákvæmlega
því ekki liggur fyrir fullunnin við-
skiptaáætlun. „Jú auðvitað er þetta
alveg öðruvísi og dýrara en ef það
væri heitt vatn hér fyrir, en þetta
er einnig hluti af útreikningum og
partur af því að skoða það sem er
í boði varðandi tæknilegar lausnir
og allt í sambandi við svona upp-
hitun, en það eru bara rosalega
jákvæð teikn á lofti í svona tækni-
þróun þannig að þetta getur gengið
upp miðað við okkar útreikninga,“
segir Kári.
Enn hafa ekki fengist öll tilskilin
leyfi fyrir þessum framkvæmdum í
Krossvíkinni, en Kári er bjartsýnn á
að þau fáist að lokum. „Ég er mjög
bjartsýnn að eðlisfari og leyfi mér
bara að vera það. Við erum búin að
vinna mikla rannsóknarvinnu nú
þegar.“ Og þið sjáið fyrir ykkur að
þetta geti fengið upp? „Já, okkur
sýnist það og við vonum það,“ segir
Kári að lokum. gbþ
Kynningarfundur í Röstinni 18. ágúst var vel sóttur. Ljósm. gbþ
Krossavík er vinsælt útivistarsvæði meðal heimamanna á Hellissandi. Ljósm. gbþ