Skessuhorn - 24.08.2022, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2022 21
Um helgina var Íslandsmótið í
hrútadómum haldið á Sauðfjár-
setrinu í Sævangi á Ströndum. Nýr
meistari var krýndur, en Stranda-
menn náðu ekki að landa sigri að
þessu sinni. Sigurvegari í vana
flokknum og þar með Íslandsmeist-
ari í hrútaþukli varð Gunnar Stein-
grímsson Stóra-Holti í Fljótum. Í
öðru sæti varð Marinó Helgi Sig-
urðsson á Hólmavík og er hann
yngsti keppandi til að komast á
pall í vana flokknum frá upphafi. Í
þriðja sæti varð Þórður Halldórs-
son á Breiðabólstað, Fellsströnd
í Dölum. Alls kepptu 35 í vana
flokknum. Eyjólfur Yngvi Bjarna-
son ráðunautur var yfirdómari að
þessu sinni.
Keppt var í flokki óvanra og
hræddra hrútaþuklara (sem eru þeir
sem ekki kunna að stiga hrútana
eftir stigakerfinu sem vanir nota
í keppninni). Í fyrsta sæti í þeim
flokki varð Elín Þóra Stefáns-
dóttir í Bolungarvík og er það alls
ekki í fyrsta skipti sem hún kemst
á verðlaunapall. Í öðru sæti varð
Katrín Jónasdóttir á Þúfnavöllum
í Hörgár dal í Eyjafirði. Þriðja varð
Bjarnheiður Fossdal á Melum í
Árneshreppi og hún hefur einnig
verið á verðlaunapalli áður. Alls
voru 17 keppendur í flokki óvanra.
Blíðskaparveður var og fjöl-
menni á staðnum, talið er að rúm-
lega 300 gestir hafi litið við yfir
daginn. Glæsilegt kaffihlaðborð var
á boðstólum og ókeypis á sýningar
setursins. Sauðfjársetrið þakkar
öllum kærlega fyrir komuna.
mm/ Ljósm. Sauðfjársetrið
Í flokki óvanra röðuðu konur í sér í öll verðlaunasætin.
Fljótamaður nýr
Íslandsmeistari í
hrútaþukli
Keppni í gangi.
Sigurvegarar í flokki vanra hrútaþuklara.
plöntutónlistina. Ég hef svo gaman
af svona fjölþættum og þverfag-
legum verkefnum og mig langar
virkilega að halda áfram í þessa átt,
fá inn fleiri miðla og auka dýptina í
tónlistinni,“ segir Anna Þórhildur.
Útlandabakterían
blundar enn
Systkinin segjast bæði hafa séð
það fyrir sér að fara út í nám ein-
hvern tímann í lífinu. Þau segjast
bæði hafa hug á að flytja aftur utan
í einhvern tíma en heimahagarnir
togi alltaf. ,,Þegar ég var yngri var
það alltaf draumurinn að halda
tónleika í landinu Evrópu,“ segir
Anna glettin. Bjarki bætir við; „ég
var alltaf með það á bakvið eyrað
en ég sé smá eftir því í dag að hafa
ekki farið út fyrr, eins og í lýðhá-
skóla eða í skiptinám í mennta-
skóla, og vera þá í aðeins létt-
ara prógrammi. Ég hefði örugg-
lega haft gott af því að gera eitt-
hvað aðeins léttara, eins og þegar
ég flyt út þarna 2017 þá hafði ég í
raun mjög lítið ferðast og var ekk-
ert sérstaklega veraldarvanur.“ En
hvernig var að búa úti í Bretlandi?
,,Ég kunni ofboðslega vel við mig
í Bretlandi en ég bjó í Canterbury
sem er lítil borg í Kent. Ég fann
samt að þegar var farið að síga á
seinni helminginn langaði mig
að fara að koma heim til Íslands
og ekki búa í ferðatösku. Það var
alltaf svolítið rót á manni svo mér
fannst bara góður tími til að koma
heim og ég er mjög sáttur við það
en ég er samt ekki alveg búin að
losna við útlandabakteríuna, þó
hún liggi kannski í dvala næstu
misseri,“ segir Bjarki.
Eiga sértungumál
Systkinin segjast ná vel saman en
þau hafa verið mjög náin í gegnum
tíðina. ,,Það eru fjögur ár á milli
okkar en við höfum alltaf verið
góðir vinir. Við vorum aldrei mikið
að kýtast en kannski kýtumst við
meira núna. Stundum má segja að
húsið rúmi ekki okkur bæði,“ segja
þau og hlæja. ,,Við tölum eiginlega
sérstakt tungumál okkar á milli sem
er byggt á frösum og tilvitnunum
í Fóstbræður, Tvíhöfða og Spaug-
stofuna. Okkar helsta áhugamál er
að gera grín af foreldrum okkar
á þessu tungumáli. Brünhild og
Gyða Sól úr Fóstbræðrum ásamt
Magnúsi og Eyjólfi úr Spaugstof-
unni eru undirstöðurnar í þessu
spaugi. Svo er þetta tungumál að
hluta til óyrt því Anna gerir óspart
grín af látbragði móður okkar með
bendingum og einföldum hljóðum.
Svo stríðum við hvort öðru mikið
en það er nú yfirleitt góð ástæða
fyrir því,“ segja þau hress.
Holland og
Bretland ólík
Bjarki og Anna hafa bæði verið í
stjórn Sambands íslenskra náms-
manna erlendis og vilja hvetja alla
til að fara utan í nám og taka þátt
í starfi SÍNE. ,,Ég myndi mæla
með því fyrir alla að fara út, þó það
sé ekki nema til Noregs eða Dan-
merkur. Við höfum komist að því
að setningin ,,what doesn‘t kill you
makes you stronger“ er bara mjög
sönn. Ferlið getur samt verið erfitt
og lærdómsríkt,“ segja systkinin í
sameiningu. Upplifun þeirra var þó
ólík. „Í Bretlandi ganga öll samskipti
út á kurteisi og fólk biðst afsökunar
fyrir að labba framhjá þér í búðum.
Þá er kurteisishjal – small talk –
hálfgerð þjóðaríþrótt,“ segir Bjarki.
Það hlakkar í Önnu og hún segir að
það eigi ekki við um Holland. „Ég
fékk eiginlega menningarsjokk því
Hollendingar eru svo beinskeittir
og hispurslausir. Ég hef til dæmis
verið skömmuð úti á götu af ókunn-
ugu fólki fyrir að tala „of hátt“ í sím-
ann,“ segir hún eilítið hneyksluð.
Saknaði náttúrunnar
Anna segist hafa lært að kunna að
meta Ísland betur eftir að hafa flutt
út en hún segir Hafnarfjallið aldrei
hafa verið eins fallegt og núna. ,,Ég
held það hafi mótað mann rosalega
mikið að vera héðan. Ég hef alltaf
verið mikið fyrir raungreinar en
með árunum hefur áhuginn færst
mun meira yfir í félagsvísindin. „Ég
hef mikinn áhuga á þjóðfræði og
sögu og það er t.d. bara æðislegt að
setjast niður í kaffi með lífsreyndu
fólki hérna á næstu bæjum. Eins og
núna stefni ég á frekara nám í fram-
tíðinni tengt þjóðfræði, tónlistar-
fræði eða menningararfi Íslands, en
það er svona mitt áhugamál núna.
Evrópa er fín og allt það en það
var erfitt að geta ekki skotist og
keyrt heim þegar ég vildi komast í
sveitina. Ég saknaði svo mikið nátt-
úrunnar og fattaði ekki hvað hún
skipti miklu máli fyrr en ég kom
heim og Hafnarfjallið hafði aldrei
verið eins fallegt.“ sþ
Anna Þórhildur tók þátt í nýsköpunarkeppni þar sem henni m.a. tókst að búa til tónlist út plöntum.