Skessuhorn - 24.08.2022, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2022 25
Gamla myndin
Í tilefni þess að á næsta ári fagnar Skessuhorn
25 ára starfsafmæli sínu hefur ritstjórn
blaðsins aðeins verið að grúska ofan í gömlum
myndakössum sem geyma myndir fyrir og í
kringum síðustu aldamót. Mynd vikunnar
er frá árinu 1999 og er tekin í garðinum hjá
Haraldi Sturlaugssyni á Akranesi þegar hann
fagnaði 50 ára afmæli sínu. Félagar Haraldar
tóku sig til og spiluðu knattspyrnu í garðinum
hjá honum að morgni afmælisdagsins.
Lokahátíð sumarlesarans var haldin
síðastliðinn miðvikudag á Bókasafni
Akraness en átakið hófst 3. júní og
stóð yfir til föstudagsins 12. ágúst.
Öllum börnum á aldrinum 6-12
ára gafst kostur á að skrá sig í sum-
arlesturinn og fá að láni bækur að
eigin vali til að lesa, sér að kostn-
aðarlausu. Markmið verkefnis ins er
sem fyrr að viðhalda lestrarfærn-
inni sem börnin öðlast um vetur-
inn en um leið er lögð áhersla á að
börnin lesi það sem þau sjálf langar
til, hvort sem um er að ræða bók á
sérstöku áhugasviði eða góða sögu-
bók.
Alls skráðu 246 börn sig í sumar-
lesturinn að þessu sinni og voru
169 virkir lesendur. Þeir lásu sam-
tals 92.736 blaðsíður í 1.311 bókum
og segir á síðu bókasafnsins að
starfsfólk sé ánægt með þátttök-
una og vill þakka öllum þeim sem
voru með. „Þetta var skemmti-
legt þema og gaman að taka á móti
ykkur. Hlökkum til næsta sumars,
hver veit hvað verður í boði þá. Við
erum nú þegar farnar að leggja höf-
uðið í bleyti…“
Hinn stórskemmtilegi og
hæfileikaríki Jörgen Nilsson hélt
uppi stuðinu, sýndi listir sínar og
kenndi krökkunum nokkur brögð.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti við á
bókasafninu og tók nokkrar myndir
af fjörinu.
vaks
Skólar á öllum námsstigum eru nú
að hefja vetrarstarfið. Meðal annars
er Tónlistarskóli Borgarfjarðar að
hefja nýja önn með nýstárlegum
námsleiðum. Sigfríður Björnsdóttir
tónlistarskólastjóri segist spennt að
taka á móti nemendum haustsins.
,,Við erum sérstaklega spennt að
hefja nýja önn og taka við nýjum og
gömlum nemendum á öllum aldri.
Við hvetjum sérstaklega táninga og
fullorðna til að koma, hvort sem
þau vilja hefja nýtt nám eða taka
upp fyrra nám. Við erum líka alltaf
opin fyrir nýjum hugmyndum,“
segir Sigfríður í samtali við Skessu-
horn.
Skólinn hefur verið í nokkurs
konar umbreytingarferli síðast-
liðið ár og mun nú t.d. byrja að
kenna nemendum á hljóðver. Árni
Jónsson mun kenna áfangann
en hann lærði upptökustjórnun í
Listaháskóla Íslands. ,,Þetta er til-
raunaáfangi og við erum bara að
taka fyrstu skrefin. Við byrjum
með lítinn bekk og kúrsinn verður
svolítið sniðinn að því sem nem-
endurnir í kúrsinum vilja gera
en annars verður þetta smá sam-
suða af því sem ég hef verið að
læra sjálfur. Við kennum kannski
minna á upptökur til að byrja
með og meira á pródúseringu.
Þá erum við að læra að nota for-
rit sem hljóðfæri, það er það sem
nútíma pródúsering snýst helst
um, að nota tölvuna og forritin til
að búa til hljóð en kannski síður
að taka upp hljóð. Ég mun þá nota
ProTools til þess og sýni hvernig
þetta virkar en ef nemendur eru að
nota önnur forrit er það allt í góðu.
Við vinnum mögulega einnig með
fundin hljóð og lærum að nota þau
í ýmislegt þannig að þetta verður
bara fjölbreytt og skemmtilegt,“
segir Árni.
sþ
Árni Jónsson mun kenna nemendum að nota hljóðver í Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hljóðverið er ennþá í uppsetningu og
opið er fyrir skráningar í kúrsinn.
Stúdíó í Tónlistarskóla Borgarfjarðar
Gönguhópurinn lagði í hann frá Hjarðarholtskirkju og gekk yfir í Stafholts-
kirkju síðastliðinn laugardag.
Pílagrímar komnir á áfangastað
Í sumar hafa þær Anna Eiríks-
dóttir, sóknarprestur Staf-
holtsprestakalls, og Elínborg
Sturludóttir, dómkirkjuprestur
og fyrrverandi sóknarprestur
Stafholtsprestakalls, staðið fyrir
Pílagrímagöngu milli kirkn-
anna í sókninni. Gengið var milli
Hvammskirkju í Norðurárdal,
yfir Grjótháls og að Norðtungu-
kirkju. Þaðan var haldið með
bökkum Þverár að Hjarðarholts-
kirkju en göngunni lauk um
liðna helgi þegar gengið var frá
Hjarðarholtskirkju í Stafholts-
kirkju en hver angi leiðarinnar
taldi um tíu kílómetra.
sþ
Jörgen í essinu sínu.
Húllumhæ á Bókasafni Akraness
Börnin fengu að leika listir sínar með fjöður.
Starfsmenn bókasafnsins tóku þátt í sjóræningjaþemanu.