Andvari - 01.01.2014, Page 27
ANDVARI
LÚÐVÍK JÓSEPSSON
25
veturinn 1934. Fór svo að kenna heima í Neskaupstað og kenndi í 9 ár,
fyrst sund sumarið 1934, og kenndi reyndar sund í nokkur sumur. „Það
var kaldur pollur og krakkarnir urðu að klæða sig úr og í á bak við hól,“
sagði Stefán Þorleifsson mér í samtali í maí 2014, en Stefán var náinn
samstarfsmaður Lúðvíks seinna á ævinni, forstöðumaður sjúkrahússins
í Neskaupstað í áratugi.
Flvergi hef ég séð það í gögnum Lúðvíks af hverju hann fór til náms
því það var sjaldgæft að alþýðubörn færu til mennta. Hvernig stóð á því
að það sem hann vann sér inn var lagt til hliðar svo hann gæti farið í
nám? Hver réð því? Hver hafði frumkvæði að því?
Lífið í Neskaupstað var ekki bara vinna fyrir krakkana sem betur fer.
Það var líka félagslíf og leikur. Stúkan var aðalvettvangur ungs fólks.
Stúka var bindindisfélag. Afengisvandinn blasti við í sjávarplássum
þessara ára. Stúkurnar urðu því stöðugt fjölmennari; andsvar við
áfengisbölinu. Stúkan Vorperlan á Norðfirði efldist. Þar voru reglulegar
samkomur og á einhverri slíkri hittust þeir Jóhannes Stefánsson og
Lúðvík. Jóhannes las upp sögu og Lúðvík tók þátt í samlestri. Jóhannes
var þá æðsti templar stúkunnar Vorperlunnar. Það var 1928.29 Ingi T.
Lárusson skrautritaði líka stúkuskírteinin.30
Lúðvík varð öflugur skákmaður og tók þátt í skákmótum Vorperl-
unnar. í desember 1927 var stofnaður taflflokkur innan Vorperlunnar
og voru stofnendur 34 stúkudrengir. Fyrsta mótið hélt félagið árið eftir
og þá reyndust þeir Lúðvík Jósepsson og Konráð P. Þormar sterkustu
skákmennirnir. Að lokum fóru leikar svo að Lúðvík var krýndur
„taflkóngur“. Hann varð aftur efstur á samskonar móti árið eftir.31 Eftir
að Lúðvík lét af stjórnmálastörfum sást hann iðulega á skákmótum og
fylgdist með spennandi skákum.
Frá bernsku hefur þessi ungi piltur heyrt talað um verkalýðsfélögin.
Það var ekki síst vegna þess að stjúpi hans, Einar Brynjólfsson, fæddur
1870, var virkur í starfi fyrsta verkalýðsfélagsins, Vinnufólksfélags
Norðfjarðar, sem var stofnað 1905.32 Verkamannafélagið Starfandi var
síðan stofnað 1915. Það varð ekki langlíft og lognaðist út af.33
Árið 1922 varð til Verklýðsfélag Norðfjarðar. Stéttaandstæðurnar
voru skýrar. Við þessar aðstæður hlaut að verða til verkalýðsfélag sem
reyndi að minnsta kosti að knýja fram að settar yrðu reglur um verðlag
á vinnuaflinu.
„Kaupgreiðslur á þessum tíma voru nær engar. Vinnan fór öll í inn-
skrift hjá kaupmönnum og launin voru tekin út í vörum verslunarinnar.