Andvari - 01.01.2014, Page 62
60
SVAVAR GESTSSON
ANDVARI
fiski, þar af þorskur um 127 þúsund tonn. Þegar landhelgin var færð út
í 50 mílur var afli þeirra enn um 210 þúsund tonn, þar af þorskur 161
þúsund tonn. Fimm árum eftir útfærsluna í 50 sjómílur var þorskafli
Breta kominn niður í um 70 þúsund tonn, þar af um 54 þúsund tonn
þorskur. Aflinn hafði minnkað um meira en tvo þriðju frá 1954.115 Árið
1951 stunduðu um 3500 breskir togarasjómenn veiðar á íslandsmiðum,
20 árum seinna voru þeir tæplega 2000 talsins. 1951 voru bresku togar-
arnir á íslandsmiðum 165, en 1971 93.116
Það voru því margskonar ólíkir pólitískir hagsmunir sem réðu
pólitík Breta: Stórveldishagsmunirnir þar sem Bretar voru hluti af
bandalaginu við Bandaríkjamenn. Hernaðarhagsmunir þar sem þeir
voru hluti Atlantshafsbandalagsins. Loks komu svo hagsmunir togara-
eigenda og fiskverkenda og hagsmunir alþýðu manna í fiskvinnslu og
fiskveiðum. Þeir síðasttöldu hagsmunirnir birtust svo í atkvæðum í Hull
og Grimsby. Það segir svo sína sögu að Bretar fengust loks til að ljúka
þorskastríðunum þegar þingmaður fyrir Grimsby var orðinn utanríkis-
ráðherra, Anthony Crosland.
50 mílur
Þegar kom fram á árið 1969 fór Lúðvík að tala um útfærslu land-
helginnar á pólitískum fundum. Hann tók málið upp á Alþingi í mars
1970 þegar rætt var um skýrslu utanríkisráðherra. Gils Guðmundsson,
fulltrúi Alþýðubandalagsins í utanríkismálanefnd, lagði til að skipuð
yrði sérstök landhelgismálanefnd. Það var gert. Landhelgisnefndina
skipaði ríkisstjórnin 4. júní 1970. I henni voru fimm menn, þeir
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
Emil Jónsson utanríkisráðherra fyrir Alþýðuflokkinn og alþingismenn-
irnir Lúðvík Jósepsson fyrir Alþýðubandalagið, Þórarinn Þórarinsson
fyrir Framsóknarflokkinn og Hannibal Valdimarsson sem þarna
var farinn út úr Alþýðubandalaginu. Jóhann Hafstein tók við for-
mennsku í nefndinni er Bjarni Benediktsson lést þá um sumarið 1970.
Fundir í landhelgisnefndinni voru margir en skiluðu litlum árangri.
Stjórnarandstöðuflokkarnir voru nú orðnir þrír; Samtök frjálslyndra og
vinstri manna urðu til og voru samferða Alþýðubandalagi og Framsókn
í landhelgismálum að mestu leyti. Lúðvík Jósepsson lagði fram í bréfi
til formanns landhelgisnefndarinnar, Jóhanns Hafsteins, tillögur sínar