Andvari - 01.01.2014, Page 71
andvari
LÚÐVÍK JÓSEPSSON
69
1914 16/6 Fæddur í litlu húsi fyrir utan gamla Víkurhúsið, íbúðarhús
Jóns Benjamínssonar skipstjóra.
1919-1920 Sennilega í Fögrubrekku, húsið sem var næst innan við Jón
Bjarnason á Melunum, næst fyrir utan íbúðarhúsið sem Páll Arnason
átti lengi.
1921-1922 Einar Brynjólfsson fóstri minn byggði Miðhús, síðar hús
Bergþórs Hávarðssonar og enn síðar Bjarna Vilhelmssonar.
1923-1924 Bryggjuhúsið. Þar á ég heima á barnaskólaaldri.
1924 í barnaskóla.
1928 Lokið barnaskóla. Fermdur af J. Guðm.129
1929- 1930 Unglingaskólinn í Sómastaðahúsinu, síðar bæjarskrifstofur.
1930- 1931 Lásum við undir inntökupróf í MA.
1931 Um vorið norður að taka próf upp í 2. bekk.
1931- 1932 í 2. bekk.
1932- 1933 í 3. bekk. 1933 um vorið gagnfræðapróf frá MA.
1932 Fjóla kemur frá Siglufirði til Neskaupstaðar.
1933- 1934 í 4. bekk. Verð veikur, líklega nóvember. Akureyrarspítali.
Inn á Kristnes; heim vorið 1934.
1934 Kenni líklega sund um sumarið.
1934 Um haustið byrja ég kennslu í gagnfræðaskólanum.
1934- 1943 Kennari við gagnfræðaskólann.
1935 Fyrsti kennsluveturinn; ég kosinn ritari Verkalýðsfélags Norð-
fjarðar.
1936 Vorið 2. júní fæðist Steinar í Sólheimum.
1937 Framboð til Alþingis. Ég fékk 261 atkv en Arnfinnur 332 atkv.
1938 Bæjarfulltrúi frá 1938-1970 eða í 32 ár, forseti bæjarstjórnar 1942-
1943 og 1946-1957.
1942 Alþingiskosningar. Ég kenni ekki um haustið. Atta ár full í
kennslu við gagnfræðaskólann, níunda kennsluárið kenni ég lítið.
1942-1979 Alþingismaður eða í 37 ár.
1944, 1946, 1948 fulltrúi á þingum Alþýðusambands íslands.
Það er gaman að sjá að Fjóla er nefnd þegar Lúðvík er sautján-átján
ára, en hún sextán; hvað gerðist þá?
Ekki hef ég fengið neinar upplýsingar um það hvað Lúðvík kenndi
annað en sund; hann kenndi allt eins og þá tíðkaðist, sagði einhver.
Annar sagði mér að hann hefði verið góður reikningskennari. Enn
annar að hann hefði kennt ensku; svo mikið er víst að hann tók þátt í