Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2014, Page 182

Andvari - 01.01.2014, Page 182
180 HEIMIR PÁLSSON ANDVARI reynir er viður og það er askur líka. Trjákenningarnar eiga sér miklu senni- legri upptök í myndinni sjálfri (maðurinn uppréttur og lifandi sem tré). í öðru lagi er ekki í samræmi við kenningasafnið að segja að nota megi öll ása heiti í kenningum manna. Nöfn Oðins og Þórs koma ekki fyrir í mannkenningum, ekki heldur birtast þar þeir Heimdallur, Bragi, Víðar (Viðar) o.fl. Stöku dul- nefni Oðins má nota, t.d. Viðrir eða Þundur: Þundur hjarar er hermaður í vísu eftir Kormák. Þeir guðir sem hins vegar koma alloft fyrir í mannkenn- ingum eru Baldur, Njörður, Freyr, Týr, Höður og Ullur. Þetta á sér máski náttúrlegar skýringar. Oðinn og Þór eru vafalítið of stór nöfn til að nota á heiðnum tíma, og eftir kristnitöku fá þeir, að minnsta kosti Óðinn, á sig svip djöfullegra persóna og það væri þá svipað og að kenna menn til jötna, ef nöfn þeirra væru notuð. Kvenkenningar eru mjög sambærilegar karlkenningunum: Konu skal kenna til alls kvenbúnaðar, gulls og gimsteina, öls og víns eða annars drykkjar þess er hún gefur eða selur, svo og til ölgagna og allra þeirra hluta er henni samir að veita eða gefa. Rétt er og að kenna hana svo að kalla hana selju eða lág þess er hún miðlar. En selja og lág það eru tré. Fyrir því er kona kennd til kenningar öllum viðar heitum. - En fyrir því er kona kennd til gimsteina eða glersteina: það var í forneskju kvenna búnaður er kallað er steinasörvi er þær höfðu á hálsi sér. Nú er svo fært til kenningar að konan er kennd við stein og við öll steins heiti. Kona er og kennd við öll ásynja heiti eða valkyrjur, nornir eða dísir. Konu er rétt að kenna við alla athöfn sína eða við eign eða við ætt. (U-Edda 2013, 253). Hér eru nógar hliðstæður við það sem sagði um karlana. Höfundur heldur sig við skýringuna á að trjá-kenningarnar eigi rætur sínar í gerendaheitum (selja, lág (fallið tré)). Ekki er frekar en áður horft eftir myndinni, hið upprétta tré - hinn upprétti karl eða kona. Það er nógu gaman að taka eftir að tískan hefur breyst, fornleifarannsóknir segja okkur að einmitt á dögum Snorra hafi verið lítið um að konur eða karlar gengju með skart um hálsinn. Hins vegar er það eins með ásynjur og áður með æsi: Þær geta allar orðið stofn í kvenkenn- ingum samkvæmt því sem hér segir. Leit í dæmasafni Skáldskaparmála mundi ekki skila miklum árangri enda fátt um ástarvísur þar. En nú er fróðlegt að líta útundan sér til ástaskáldsins Kormáks Ögmundarsonar. Hann myndar í vísum, sem honum eru eignaðar, sem næst 60 kvenkenningar. Þar af hafa 6 kenningar stofn úr náttúrunni: lind, þella (x2), þöll, eldreið, lýsigrund. Fimmtíu og fjórar hafa að stofni gyðjuheiti eða valkyrju. Alls nefnir Kormákur 20 nöfn: Bil, Eir (x5), Fylla, Freyja (3), Frigg (2),Fríður, Gefn (4), Gerður (2), Gná (3), Gunnur (4), Hlín (x6), Hrist, Hörn (2), Ilmur (x2), Nanna (x2), Njörun, Rindur (x3), Sága (x4, þar af tvisvar hálfkenning), Sif (x2) Skögul. Niðurstaðan hlýtur samkvæmt þessu að vera sú að skilgreiningin um kven-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.