Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Qupperneq 4
Frá hinu fagra Fijii, þar
sem ljósgeislar Fagnað-
arerindisins þrengja sér
nú inn.
kunngerður verða þeim, „sem á jörð-
unni búa, og sérhverri þjóð og kyn-
kvísl og tungu og lýð.“ Op. 14, 6. 7.
Þannig sjáum vér frá fyrstu bók
Alóse til Opinberunarbókarinnar, að
frá upphafi tímanna, er áformið um
endurlausn mannanna varð til, að
kærleikshugsun Guðs umlykur ekkert
minna en allan heiminn.
Með þessa fyrirætlun Guðs í huga,
leitast Sjöunda dags Aðventistar við,
undir hans stjórn. að flytja öllum
heimi boðskap hjálpræðisins. Afleið-
ing þessarar viðleitni er sú, að nú
starfa þeir í 385 löndum, eyjum og
eyjaklösum, starfsetja 28000 trúboða
og aðra starfsmenn, og nota í starfi
sínu 714 mál og mállýzkur.
Sjöunda dags Aðventistar leitast
eigi aðeins við að framfylgja fyrir-
ætlun Guðs að því er snertir starfs-
svæði, en þeir trúa því einnig, að
nauðsynlegt sé að viðhafa þær að-
ferðir, sem Kristur notaði í starfi
sínu. Þessar aðferðir eru einfaldar,
víðtækar og áhrifamiklar. Þær út-
heimta að menn noti alla hæfileika
sína, andlega, sálarlega og líkamlega.
Jesús kenndi, prédikaði og læknaði.
Menntun.
Sönn menntun nær til og þroskar
alla mannlega krafta: andlega, sálar-
lega og líkamlega. A þessum grund-
velli reka Sjöunda dags Aðventistar
2769 lægri og æðri skóla með meir
en 6000 kennurum og 120,000 nem-
endum.
Hér eru ekki taldar með þær
þúsundir ungra manna og kvenna,
sem fá menntun sína á heilsuhælum og
sjúkrahúsum. Aðventistar leggja
mikla áherzlu á skólastarfið meðal
hins frumstæða fólks í kristniboðs-
löndunum. Eitt af því fyrsta sem
gert er meðal hinna innfæddu í heið-
ingjalöndunum er að stofna kristni-
boðsskóla, þar sem ungir og gamlir
geta lært að lesa og skrifa. Þeir fá
einnig tilsögn í akuryrkju, heilsufræði
og heimilisstörfum.
Ekki alls fyrir löngu fékk ég færi
á að heimsækja í flugvél innlands-
svæði þau í Nýju-Guineu, sem ný-
2