Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Síða 20
Kristniboðssjúkrahúsið og
holdsveikranýlendan við
kristniboðsstöðina í Kendu.
Kristniboðs-sjúkrahúsið í Kendu
stendur uppi í hárri brekku, með
útsýn yfir bakka Viktoríuvatnsins.
Þar er rúm fyrir sjötíu sjúklinga, og er
þar venjulega yfirfullt. Starfsfólkið er:
einn læknir, þrjár hjúkrunarkonur frá
Norðurálfu og fjórtán innlendir að-
stoðarmenn. I fyrra veittum vér lækn-
ishjálp hér um bil 1400 rúmliggjandi
sjúklingum, sem þjáðust af alls konar
sjúkdómum. 114 stórir læknisskurðir
voru gerðir, sem næstum því allir
tókust mjög vel.
Af þeim sjúklingum sem koma og
fara daglega, hafa 32,000 fengið lækn-
ishjálp síðastliðið ár. Þetta allt hefir
stöðugt fengið starfsfólki sjúkrahúss-
ins meir en nóg að gera, en vér höf-
um reynt blessun Guðs í starfi voru
Aðkomnir sjúklingar bíða eftir læknishjálp fyrir
utan Kendu-sjúkrahúsið í Afríku.
að því að lækna líkama og sál þess-
ara innfæddu Afríkumanna, sem lifa
í því svartnættismyrkri hjátrúarinnar,
er grúfir yfir þessari heimsálfu, þar
sem eyðileggjandi siðvenjur og van-
þekking á heilsufræði er ennþá ríkj-
andi.
I sambandi við sjúkrahúsið höfum
vér holdsveikra nýlendu, sem vér
vonum að geti innan skamms stækk-
að svo, að vér getum tekið að oss
alla holdsveika sjúklinga í þessu hér-
aði; eru þeir yfir þúsund að tölu.
Hinir innfæddu búa í sérstökum kof-
um, og fá innspýtingu tvisvar í viku
á sjúkrahúsinu. I þorpinu, þar sem
hinir holdsveiku dvelja er allt í
bezta lagi, hvað þrifnað og heilbrigð-
isreglur snertir, og starfsfólk sjúkra-
hússins hefir þar daglegt eftirlit með
öllu. Lækningatilraunir þær, sem
gerðar hafa verið á hinuin holdsveiku
í Kavirondo-héraðinu hafa borið bezta
árangur, síðan nýlendan þar var
stofnuð.
Dr. G. A. S.
Madgwick,
Kenya.
18