Flug : málgagn Flugmálafélags Íslands - 01.03.1939, Blaðsíða 6
konsúll, Sveinn Björnsson yfirr.mflm. og Axel
VT. Tulinius forstjóri. — Það lenti þó í minn
hlut að ganga á milli manna og safna hluttak-
endum. Urðu þeir rúmir 70 og lofuðu flestir
500 kr. tillagi svo að á þennan hátt söfnuðust
rúmar 30.000 kr.
Hið fyrsta „Flugfélag Islands“ var svo
stofnað 22. og 28. marz 1919.
í stjórn þess urðu Garðar Gíslason form.,
Pétur Halldórsson féhirðir, P. Á. Ólafsson, A.
V. Tulinius og ég, sem var ritari og hafði auk
þess umsjón daglegra starfa.
Á næsta sumri (1919) var svo fyrir milli-
góngu „Dansk Luftfartsselskab" í Khöfn
keypt lítil ensk „Avro“- landfluga (sjá mynd
framan á kápunni) með tveimur sætum
og 110 hesta ,,le Rhone“ hverfivél
(rotary motor). Sem flugmaður var ráðinn
Gecil Faber flugkaptemn úr enska hernum,
sonur Haralds Faber landbúnaðarráðunauts
Dana í London, ásamt 2 vélamönnum enskum.
Við fengum til umráða svonefnt Briemstún í
Vatnsmýrinni, eða sem næst sama blettinn og
nú er fyrirhugað að gera flugvöll á og var þar
reistur skáli fyrir vélina. —
— Vegna ýmsra tafa gat flugið ekki hafist fyr
en 3. sept. Þótti það að vonum hinn mesti við-
burður, enda var það í fyrsta sinn að flugvél
sást á lofti hér á landi.
Fyrirætlun Flugfélagsins var fyrst um sinn
sú, að kynna flugið með sýningum, farþega-
flugi um nágrennið og rannsaka horfur á því
að unnt yrði að koma á flugsambandi meðal
helztu staða á landinu fyrir póst og farþega.
Var einkum áhugi á þessu í Vestmannaeyjum
vegna forgöngu Sigurðar skálds frá Arnar-
holti, er þá var þar lyfsali. Flugum við Faber
þangað 18. sept. og ætluðum að lenda þar á
knattspyrnuvelli. Vindur var allhvass af
norðri og hamlaði misvindi yfir eyjunum allri
stjórn á vélinni eftir því sem flugið var lækk-
að. Það var því ekki viðlit að lenda og mátti
heita heppni, að við sluppum lifandi frá þess-
ari tilraun. Héldum við svo til lands aftur og
lentum í Kaldaðarnesi. —
Vegna skorts á lendingarstöðum var annars
lítið flogið út fyrir nágrenni Reykjavíkur, en
aðallega haldið uppi hringflugi með einn far-
þega í senn.
Næsta sumar (1920) var í þjónustu Flugfé-
lagsins flugmaður frá Kanada af íslenzkum
foreldrum Frank Frederickson. Hélt hann
fluginu áfram með líku móti og áður og gerði
m. a. nýja tilraun til að lenda í Vestmannaeyj-
um, er einnig mishepnaðist. Komst hann í land
en varð að nauðlenda á Þjórsársandi vegna
benzínskorts .
Þó að Alþingi veitti nokkurn styrk til þess-
ara tilrauna (15.000 kr.) reyndist reksturinn
svo dýr, eins og þá stóðu sakir, og lendinga-
skorturinn svo tilfinnanlegur, að ekki var við-
lit að færa út kvíarnar, hvorki með landflug-
um né heldur sjóflugum, sem voru og eru enn
mun dýrari í rekstri.
Síðar (1928) var með aðstoð þýzka flugfé-
lagsins „Luft-Hansa“ gerð stærri tilraun með
2 sjóflugum. Reyndist hún einnig of kostnað-
arsöm, en heppnaðist að öðru leyti vel. — Þó
að segja megi að þessar tvær tilraunir væru
gerðar of snemma, fékst þó af þeim ýmiskon-
ar verðmæt reynsla auk þess sem þær hafa
vakið og viðhaldið mjög almennum áhuga fyr-
ir flugferðum í landinu.
80 manns hafa þegar gefið sig fram sem far-
þegar í fyrstu flugferðirnar sem breska flug-
félagið „Imperial Airways“ hefir í hyggju að
hefja nú á næstunni yfir Norður-Atlantshafið.
Félagið er þegar búið að láta smíða 4 risa-
flugbáta sem eiga að fljúga þessa leið. Mestum
hluta eldsneytis þess, er flugvélarnar munu
nota á fluginu verður dælt í þær úr annari
flugvél eftir að þær hafa hafið sig til flugs.
Eins manns flugvél (hernaðarvél) flaug
frá Le Bourget (París) til Croydon (London)
þann 16. janúar á 41 mínútu, og er tíminn
reiknaður frá því að flugvélin renndi frá flug-
skýlinu í París og þar til hún hafði rennt sér
á tilsvarandi stað í London. Vegalengdin er
205 enskar mílur (328 km.) og svarar það til
300 e.m. (480 km.) hraða á klst. Sé reiknað
með að vélin hafi þurft 2 mín. í París til þess
að hefja sig til flugs, og aðrar 3 mín. til þess
að lenda í London og renna að skýlinu þar,
verður meðalhraðinn 340 e.m. (545 km.) á
klst. Það er tekið fram að veðurskilyrði hafi
ekki verið hagstæð, og eins varð vélin af þeim
orsökum að klifa upp í 18.000 feta (5600 m.)
hæð. Hreyfill vélarinnar er „Rolls-Royce Merly
1030 hestöfl.
4
PLUG