Flug : málgagn Flugmálafélags Íslands - 01.03.1939, Side 10
Bergur G. Gislason
LANDFLUG
Árið 1919 hófst flug hér á landi, og þá með
landflugvél. Flugtæknin var þá skamt á veg
komin, og af þeim og ýmsum öðrum ástæðum
varð þessi fyrsta tilraun skammlíf og megnaði
ekki að verða upphaf að hagnýtu flugi. Árið
1928 var önnur tilraun gerð og þá með sjóflug-
vélum. Þetta fyrirtæki reyndist okkur fjárhags-
lega ofvaxið og leið undir lok, eftir tiltölulega
skamman tíma. En alltaf var áhugi fyrir flug-
samgöngum vakandi. Á síðastliðnu ári eru það
Norðlendingar, sem taka upp þráðinn, og nú
starfar hér ein farþegaflugvél, og er það sjóflug-
vél. Þá eru í eigu landsmanna tvær litlar land-
flugvélar, önnur notuð til æfingaflugs, en hin
aðallega til rannsóknaleiðangra í flugvallaleit.
Er þess að vænta, að hér eftir slitni ekki þráð-
urinn, og flug- og flugsamgöngur falli hér ekki
niður héðan af.
Þegar því er nú svo varið, að landflugvélar
eru allt að 50% ódýrari í rekstri en sjóflugvél-
Fyrirhugaður flugvöllur í Reykjavík.
ar, og sjóflugvélum verður ekki komið við víðs-
vegar þar, sem nota mætti landflugvélar, þá
skilja menn það, hversu mikið er undir því kom-
ið, að á þeim stað, sem að sjálfsögðu hlýtur að
verða höfuðsetur allra samgangna hér á landi, þ.
e. Reykjavík, sé til flugvöllur. Og fyr en hann er
fenginn, getur alls ekki orðið starfrækt hagnýtt
landflug hér á landi.
Athuganir síðastliðið sumar hafa sýnt, að
víðsvegar út um land má finna sæmilega flugvelli
gerða af náttúrunnar hendi, og enn aðra sem
þurfa smávægilegra endurbóta. Auk þessa er svo
fjöldi landsvæða sem nauðlenda mætti á með lít-
illi eða engri áhættu. Er í þessu fólgið mikið ör-
yggi umfram það, sem sjórinn hefir að bjóða. í
þessari fyrstu athugunarför, var flogið á báðum
litlu landflugvélunum sem hér eru til, hringinn
í kringum landið, án nokkurs sérstaks undirbún-
ings. Gefur þetta góða hugmynd um möguleika
landflugsins.
Með hliðsjón á því sem nú hefir verið greint,
hefir Flugmálafélag íslands beitt sér fyrir því,
að gerður verður flugvöllur hér í Reykjavík,
sem yrði þá aðalflughöfn landsins. Með slíkri
flughöfn mundu opnast miklir möguieikar.
Ríkisstjórn og bæjarstjórn hafa tekið þessu
máli mjög vinsamlega, og hafa með þeirra ráði
þegar verið gjörðar mælingai og uppdráttur að
þessum fyrirhugaða flugvelli.
Svo sem meðfylgandi uppdráttur ber með sér,
er honum ætlaður staður í Vatnsmýrinni, en
hefir nú verið fjarlægður frá bænum, miðað við
það sem upphaflega hafði verið ætlunin. Hefir
þetta verið gert í samráði við flugmenn og aðra
sérfróða menn, og er lega vallarins nú talin hin
ákjósanlegasta.
Svo sem til hagar hér á landi, verður sjó-
flug að sjálfsögðu starfrækt hér í framtíð, að
einhverju leyti, og er það þá mikill kostur, hve
skammt er á milli flughafnanna, flugvallarins
í Vatnsmýri og flughafnarinnar við Shellvíkina.
Gerð þessa fyrirhugaða vallar var nokki um
erfiðleikum bundin sakir þess, hve landið liggur
lágt. En með aðstoð Valgeirs Björnssonar bæj-
FLUG