Flug : málgagn Flugmálafélags Íslands - 01.03.1939, Blaðsíða 12
KRINGUM LAND
Árið 1938 verður vísast talið allviðburðar-
ríkt í sögu íslenzkra flugsamgangna.
Eitt atriðið sem þessu veldur, verður að telja
leiðangra þá sem á þessu ári voru farnir um
landið í leit að lendingarstöðum fyrir landflug-
vélar.
Flugmálafélag fslands keypti litla flugvél af
leiðangursmönnunum þýzku og hljóp ríkis-
stjórnin þar drengilega undir bagga og lagði
fram röskan helming af kaupverðinu, enda eiga
þessir aðiljar vélina í félagi.
Er þetta tveggja manna vél, létt og meðfæri-
leg, með 80 hestafla hreyfli, og miklum svif-
hæfileikum. Á þýzku nefnist tegund þessi
„Klemm“, en hefir hér heima bætt við sig öll-
hugsanlegum íslenzkum beygingarendingum.
Tilgangurinn með kaupunum var rannsókn-
arstarfsemi, og þá ekki sízt flugvallaleit.
Hinn 13. september lögðu þeir Agnar flug-
maður og Bergur G. Gíslason upp í fyrstu leitar-
förina. Var flogið austur til Vestmannaeyja en
þar reyndist ekki fært að lenda eins og er, en
lent var á 6 stöðum í Landeyjum og tveim stöð-
um á Rangárvöllum, aðallega á örfoka söndum,
er reyndust hinir prýðilegustu lendingarstaðir.
Hinn 15. september var flogið upp í Borgar-
íjörð, en þar eð veður var óhagstætt, var
frestað athugunum þar, en eftir lendingu á
Hvanneyrarfit haldið norður yfir Holtavörðu-
heiði. Fer hér á eftir skýrsla um staði þá, sem
lent var á í flugför þessari.
„Klemm“
TF-SUX
Bláfuglinn
TF-LÓA
Hvanneyrarfit. Góður grasvöllur á bökkum
Hvítár, ekki allskostar þur, og flæðir yfir fitina
í stórstraumsflóði.
Miðfjarðarbotn. Sandur fyrir fjarðarbotni
ca. 800X^00 m., rennisléttur og harður. Kvað
breytast lítið allan ársins hring.
Stóra-Giljá. Góðir grasvellir. Mætti gera flug-'
völl ca. 500x500 m., með því að flytja símalín-
una, sem liggur um völlinn þveran.
Blönduós. Sandflöt kippkorn vestan kaup-
túnsins, nothæf, dálítið hnjóskótt og laus, ca.
300x400 m.
Gunnarsstaðir í Langadal. Góður grasvöllur
ca. 80x400 m., liggur meðfram ánni. Aðstaða
til að ná hæfilegri hæð áður flogið er yfir Vatns-
skarð.
Langamýri Skagafirði. Grasflötur við vestari
brú Héraðsvatna, dálítið hnjóskóttur, ca. 200X
400 m.
Austur-brú Héraðsvatna. Stórar og góðar
grasflatir, beggja megin vegar. Mætti gera flug-
völl með ca. 700 m. brautum með því að flytja
til síma.
Vallanes. Harðir grasvellir, rétt góðir.
Stokkhólmur. Tún, sæmilegt 50x300 m. N. S.
Víðivellir. Góður grasvöllur nýrækt fyrir neð-
an túnið. Harður, svolítið hallandi, ca. 300 x
300 m.
Reynistaður. Nothæfur neyðarlendingarstað-
ur á engjum.
Sauðárkrókur. Sandflöt suðaustur af kaup-
túninu, gljúp. En fá mætti nothæfan völl með
því að flytja til síma.
Hólar í Hjaltadal. Harðir og góðir grasbakk-
ar, ca. 100x500 m.
Grund í Svarfaðardal. Grasflöt austur af
bænum, góð vestast en blaut og varhugaverð
þegar austar dregur.
Skíðadalur. Lent var á sæmilegri grasflöt
milli Dælis og Másstaða.
10
FLUG