Símablaðið - 01.12.1982, Síða 18
ilvægt þegar til lengri tíma er
litið en það er bókun með sér-
kjarasamningi þar sem segir
að Póst- og símamálastofn-
unin muni kappkosta að veita
tæknimönnum sínum sem víð-
tækasta möguleika til endur-
menntunar. Ef rétt er á mál-
um haldið, tel ég að þetta
megi nýta mjög til hagsbóta
fyrir okkur símvirkja.
Gunnar Gunnarsson.
Símvirkjaflokksstjóri,
Sjálfvirka stöðin, Reykjavík.
Starfsaldur: 20 ár.
Ef horft er á aðstæður í
þjóðfélaginu í dag, er ég
sæmilega ánægður með samn-
ingana, sérstaklega sérkjara-
samninginn. T.d. leiðrétting á
laugardögum til orlofs, starfs-
aldurshækkanir og launa-
flokkshækkanir. En opinber-
ir starfsmenn hafa dregist það
mikið aftur úr öðrum stétt-
um að hæpið er að fullur
launajöfnuður hafi náðst,
miðað við störf á hinum al-
menna launamarkaði.
Ásta Guðmundsdóttir
Skrifstofumaður á skrifstofu
Símstöðvarinnar í Reykjavík
á Sölvhólsgötu.
Starfsaldur: 23 ár.
Samningarnir voru alls ekki
nógu góðir. Launabilið milli
opinberra starfsmanna og
annarra launþega minnkaði
ekki neitt og skrifstofufólk
hjá Pósti og síma er áberandi
langt á eftir öðrum starfshóp-
um annars staðar í ríkiskerf-
inu, að maður tali ekki um
sambærilega starfshópa ann-
ars staðar á launamarkaðin-
um. Starfsaldurshækkanirnar
voru ágætar því að þá eru ein-
hverjar kjarabætur framund-
an hjá fólki. Lenging orlofs
var líka í sjálfu sér gott atriði
en hefði samt ekki átt að
koma í stað beinnar launa-
hækkunar. Námsbrautin fyrir
skrifstofu- og afgreiðslufólk
var sjálfsögð og hefði átt að
vera komin fyrir löngu. í heild
gaf sérkjarasamningurinn
meira en aðalkjarasamning-
urinn.
Ársæll Gunnarsson.
Símritari, Ritsímanum í
Reykjavík.
Starfsaldur: 4 ár.
Ég er mjög ánægður með
lengingu orlofs um 4 daga og
einnig þá hækkun, sem orðið
hefur á vaktaálagi. En ég er
alls ekki ánægður með starfs-
aldurshækkanirnar, álít að
þar ætti að miða við miklu
lægri starfsaldur.
Þá er grunnkaupið alltof
lágt hjá okkur símriturum og
þarfnast mjög nánari endur-
skoðunar.
76 SÍMABLAÐIÐ