Símablaðið - 01.12.1982, Side 23
Viðtal við:
Fulltrúa símvirkja
í starfsréttindanefnd
Halldór Lárusson
Hér á eftir er birt stutl viðtal við Halldór Lárusson, en hann var skipaður fulltrúi símvirkja
í starfsréttindanefnd snemma á þessu ári. Síðan hefur hann verið að vinna að því að safna
upplýsingum um þá sem hafa lokið námi í símvirkjun. í því sambandi fengust eftirfarandi
upplýsingar í samtali við Halldór:
Hvernig fá núverandi símvirkjar og sím-
virkjameistarar rafeindavirkja- og meistara-
réttindi?
H. Lár — Allir sem lokið hafa símvirkja- og
meistaranámi fá sveinsbréf og meistarabréf
sem spanna yfir öll svið rafeindavirkjunar.
Nú má ætla að um það bil 300 símvirkjar
og símvirkjameistarar séu hér á landi. Hvernig
gengur að hafa upp á þessum mönnum?
H. Lár — Unnið hefur verið að því að gera
félagatal yfir alla þá sem lokið hafa námi.
Þeir fá síðan bréf frá Menntamálaráðuneyt-
inu um að þeim sé heimilt að leysa út sveins-
eða meistarabréf í rafeindavirkjun hjá við-
komandi lögregluyfirvöldum (lögreglustjóri,
fógeti eða sýslumaður).
Hverjir eru í starfsréttindanefnd?
H. Lár — Fulltrúar sveinafélags útvarpsvirkja,
meistarafélags útvarpsvirkja, félags skriftvéla-
virkja, sveinafélags rafeindavirkja og sím-
virkja. Einnig situr í nefndinni fulltrúi Pósts
og síma.
Nefnd þessara aðila mun fjalla um hvern
einasta einstakling áður en erindi verður sent
til Menntamálaráðuneytisins.
Hvenær má búast við að sveins- og meist-
arabréf verði tilbúin til afgreiðslu?
H. Lár — í upphafi næsta árs.
Er eitthvað fleira í gangi varðandi rafeinda-
virkja?
H. Lár — Já, það verður skipuð þriggja
manna nefnd sem mun móta menntunarbraut
rafeindavirkja í framtíðinni. Skv. lögum mega
ekki sitja fleiri en þrír aðilar í þessari nefnd
en líklega mun verða skipuð fjölmennari und-
irnefnd vegna fjölda þeirra starfsgreina er
stendur að rafeindavirkjun. Eitt aðalstarf
þessarar nefndar verður að fjalla um álit smá-
straumsnefndar — oft nefnt bláa bókin — og
sjá til þess að það sem samkomulag verður
um komi til framkvæmda.
Og í framhaldi af þessu vil ég geta þess að
ef vel tekst til að móta fagfélag mun það verða
hornsteinninn að félagslegri og launalegri
stöðu í framtíðinni.
Þorsteinn Óskarsson
Halldór Lárusson er símvirkjaverkstjóri II í Hússtöðvadeild. Hann hóf störf hjá P.& S. 1. 9.
1962.
SIMABLAÐIÐ
81