Símablaðið - 01.12.1982, Síða 34
UM
TÖLVUSKERMA
Vinna við tölvuskerma veldur óþægindum
Texti: Kristjana H. Guðmundsdóttir
Rannsóknir á Norðurlöndum undanfarin ár hafa leitt í Ijós, að vinna við tölvuskerma veld-
ur starfsfólki ýmsum óþægindum. Virðist það vera í sambandi við stöðugt rafsvið og óhrein-
indi í loftinu. Einkennin eru mjög lík þeim er koma fram við aukningu jákvæðra jóna í loftinu.
Upphaf þessara rannsókna var, að vorið
1979 kom í ljós að nokkrir starfsmenn við
símastofnunina í Bergen höfðu um langan
tíma haft óþægindi af kláða og útbrotum í
andliti. Frá því í byrjun árs 1980 hafa vísinda-
menn unnið að því að finna ástæðuna fyrir
þessum óþægindum. í skýrslu þeirra kemur
fram, að hið stöðuga rafsvið fyrir framan
tölvuskerm hljóti að vera ástæðan fyrir kláða
og útbrotum. Með því að láta viðkvæmasta
fólkið verða fyrir stöðugu staðbundnu raf-
sviði, framkölluðu á annan hátt, kom fram
kláði á húð og í einu tilfelli samskonar tegund
útbrota.
Einkennin hurfu þegar séð var um að gólf-
ábreiðan var afrafmögnuð og jarðbundin.
Einnig kom í ljós, að jarðtengdur vatnsskerm-
ur, með saltvatni milli tveggja glerplatna, sem
staðsettur var nokkrum millimetrum fyrir
framan tölvuskerminn, kom í veg fyrir útbrot.
Á þeim stöðum í andlitinu, sem útbrotin
komu fram, var sett límband. Það sýndi sig,
að á það hafði sest mikill fjöldi agna ca. 0,3
mikron að þvermáli. Við rannsókn á þessum
ögnum fannst bæði nitrat og sulfat. Það kem-
ur heim við það sem áður var vitað um agnir
í lofti. Agnir af þessari tegund geta verið hlut-
lausar eða haft jákvæða eða neikvæða hleðslu.
92
Hlaðin ögn getur haft allt að fimm hleðslu-
einingar af sömu tegund. Um var að ræða
nitrat-, klorid-, sulfat-, sulfid- og nitrit- jónir,
fyrir utan ýmsa málma. Samsetningin gat ver-
ið mismunandi eftir tegund nærliggjandi verk-
smiðja og reyks.
Þreyta, höfuðverkur og óþægindi
í augum.
Fyrir utan þau tiltölulega fáu tilfelli af út-
brotum og kláða, koma fram ýmis önnur ein-
kenni við vinnu við tölvuskerma. Nokkur
hinna mest áberandi einkenna er höfuðverkur,
þreyta og ýmiskonar óþægindi í augum. Þetta
eru einkenni, sem hvert fyrir sig geta komið
upp á ýmsum mismunandi vinnustöðum.
Áberandi fyrir störf við tölvuskerma er að
mörg einkenni koma fram samtímis og flestir
þeirra sem finna fyrir þessum óþægindum,
finna fyrir þeim eftir ca. 2 klst. starf við
skerminn.
í skýrslunni er skýrt frá því, að sterkar líkur
séu á að óþægindi við störf við tölvuskerma
megi rekja til hlutfallslegrar aukningar já-
kvæðra jóna í umhverfinu.
Gólfábreiður öðlast jákvæða hleðslu við
umgang, og notkun tölvuskerma mun eiga
SIMABLAÐIÐ