Símablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 38
Efri röð frá vinstri: Guðlaug Bergþórsdóttir Akranesi, Steinunn Garðarsdóttir Reyk-
holti, Ingunn Jónasdóttir Akranesi, Sigurlín Magnúsdóttir Akranesi, Anna Gunnlaugs-
dóttir Akranesi, Hugrún Þórarinsdóttir Akranesi, Sigríður Guðmundsdóttir Reykholti,
Guðrún M. Harðardóttir Borgarnesi, Kristín Haraldsdóttir Borgarnesi, Guðrún Davíðs-
dóttir Borgarnesi og Eiríkur Þorvaldsson Akranesi.
Neðri röð frá vinstri: Ingibjörg Hafberg Reykholti, Ingibjörg Helgadóttir Reykholti,
Hulda Haraldsdóttir Akranesi, Jóhanna B. Hallgrímsdóttir Borgarnesi, Vilborg Orms-
dóttir Borgarnesi, Sigrún Stefánsdóttir Borgarnesi og Olöf Guðmundsdóttir Reykholti.
Mynd: Friðrik Alfreðsson, Akranesi.
Aðalfundur Akranesdeildar
F.Í.S.
Síðastliðinn vetur var aðalfundur Akranes-
deildar F.Í.S. haldinn í húsakynnum hins nýja
íþróttavallarhúss á Akranesi. Á fundinum
mætti starfsfólk frá Akranesi, Borgarnesi og
Reykholti en starfsfólkið frá tveim síðasttöldu
stöðunum auk Eyrarkots tilheyrir einnig Akra-
nesdeildinni.
Formaður deildarinnar Eiríkur Þorvaldsson
setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
Formaður skýrði frá störfum deildarinnar
síðasta starfstímabil. Voru m.a. haldnir deild-
arfundir til eflingar félagsandanum, og einnig
eru árshátíðir fastur liður hjá deildinni og var
árshátíðin nú síðast haldin á Akranesi og tókst
sem fyrr mjög vel og þátttaka góð.
Á fundinum var rætt um félagsmál og mikl-
ar umræður urðu um þá þróun mála að fækka
símstöðvum og styttingu opnunartíma sím-
stöðva og þar af leiðandi um hugsanlegar upp-
sagnir hjá talsímavörðum. Þar sem margir
talsimaverðir hafa unnið árum og áratugum
saman hjá Pósti og síma voru þau að vonum
uggandi um vinnu sína hjá stofnuninni.
Því næst var gengið til stjórnarkjörs. Var
Eiríkur Þorvaldsson endurkjörinn formaður
og með honum í stjórn voru kjörin, Sigrún
Stefánsdóttir frá Borgarnesi og Ólöf Guð-
mundsdóttir frá Reykholti.
Formaður þakkaði síðan góða fundarsókn
einkum hjá kvenþjóðinni og óskaði Borgnes-
ingum og Reykhiltingum góðrar heimferðar
og sleit síðan fundi.
Að fundi loknum var síðan boðið til kaffi
og meðlætis.
Eiríkur Þorvaldsson
96
SÍMABLAÐIÐ