Símablaðið - 01.12.1982, Side 44
Frá Póst-
og
símaskólanum
Jón Ármann Jakobsson.
Fimmtudaginn 18. nóvember s.l. bauð Póst- og símaskólinn til kaffidrykkju í Sigtúni við
Austurvöll og sátu samkomuna á annað hundrað manns. Formaður skólanefndar, Þorgeir
K. Þorgeirsson setti samkomuna og bauð gesti velkomna, en tilefnið var að afhenda átti próf-
skírteini til 114 nemenda.
Skólastjóri Póst- og símaskólans, Jón Ármann Jakobsson, rakti störf skólans s.l. misseri
og fer ræða hans hér á eftir:
Haustið 1981 hófst kennsla í skólanum 15.
september og var öllum námskeiðum lokið
11. júní s.l. vor, en alls urðu námskeiðin 10
og fjöldi nemenda var 146. Við skólann
kenndu 48 kennarar og kennslustundafjöldi
varð um 3000.
Undanfarið hefur verið hugað að nýjum
námsbrautum fyrir hina ýmsu hópa sem
starfa hjá Stofnuninni, en auk þess þarf stöð-
ugt að endurskoða og bæta aðrar námsbrautir
svo þær fylgi kröfum tímans.
Á síðasta skólaári var haldið námskeið fyrir
landpósta í Árnes- og Rangárvallasýslu, sem
er nýtt nám við skólann. Var fengin aðstaða
fyrir þessa kennslu í Gagnfræðaskólanum á
Selfossi og fór hún fram tvisvar í viku kl. 18
—22 á kvöldin.
Auk eins kennara frá Selfossi, Ólafíu Hans-
dóttur, fóru kennarar héðan frá Reykjavík
austur og þá oftast Kristbjörg Halldórsdóttir,
sem þá var settur skólastjóri í veikindum
mínum.
Tókst þetta námskeið mjög vel og luku 10
manns námi og verður þeim afhent prófskír-
teini hér á eftir. Áætlað er að halda fleiri slík
námskeið fyrir landpósta víðsvegar um landið
í formi bréfaskóla.
Síðastliðinn vetur hófst bréfaskólanám fyr-
ir símritaranema sem staðsettir eru á ýmsum
stöðum á landinu og er áætlað að þeir ljúki
námi næsta vor, slíkt námskeið var haldið
fyrir nokkrum árum og gafst það vel.
í haust er að byrja ný námsbraut fyrir rit-
símaritara, að hluta til í bréfaskóla, en þeim
102 SÍMABLAÐIÐ