Símablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 46
í ■■Blí T æknimannsins
í þrautir
Stefnir Þorfinnsson
María Vilhjálmsdóttir, starfsmaður á skrifstofu P.&S. í Vestmannaeyjum, sendi Símablað-
inu meðfylgjandi vísur eftir Stefni Þorfinnsson símvirkja.
Tilefni vísnanna var, að símvirkjar í Vestmannaeyjum sendu Birgðavörslu P.&S. beiðni um
hlífðarfatnað, en þeir annast viðhald á loftnetum og tækjabúnaði á Klifi, Sæfjalli, auk þess
sem þeir annast viðhald og eftirlit með radíótækjum og loftnetum í bátaflota Vestmannaeyinga.
Þeir létu vísurnar fylgja með beiðninni og úlpurnar komu um hæl.
Tœknimannsins margar þrautir,
megum flestir glíma við.
Vestmannaeyja brattar brautir,
berjumst oft við lítil grið.
Eins á Sæfjall oft við leggjum,
eirir Kárifáu þar.
Kuldann oft þar kynnir segjum,
kroppinn verðu úlpurnar.
Uppímöstrum mikilsflota,
megum príla smur og sót.
Jafnt þó bregði hann íblota,
brátt þá verða fötin Ijót.
Einatt förum upp á Klifið,
oft þó blási Kári mót.
I klœðin er þá reitt og rifið,
regngaUinn þar gerði bót.
Oft hér eru válynd veður,
Vestmannaeyja mark er það.
Friðursé þér frœndi meður,
fylgdu óskum vel íhlað.
Gert í sept. ’79.
Stefnir Þorfinnsson
símvirki
Vestmannaeyjum.