Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Side 14

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Side 14
Irvörfutn í allri skráningu á þeitn atriðum, sem rannsökuð eru á meðgöngutíma og við fæðingu. Hún hefur skapað samræmi í gagna- söfnun og nánari tengsl með þeim, sem að mæðravernd vinna í land- inu. Mæðraskráin fylgir konunum á fæðingarstað, þannig að allar upplýsingar um meðgöngutímann liggja fyrir, þegar konan fæðir. Sú stofnun, er konan fæðir á, geymir mæðraskrána sem sjúkraskrá viðkomandi konu. Heilbrigðismálaráðuneytið greiddi kostnað af prentun, en Pæðingadeild Landspítalans annast dreyfingu um allt land. Endurskoðun fór fratn eftir eins árs reynslu og atriði leiðrétt, sem sætt höfðu gagnrýni. Verður mæðraskráin endurskoðuð framvegis og leiðréttingar gerðar, eftir því sem reynsla og kröfur tímans segja til um, en gildi sitt hefur hún þegar sannað. I, 5. SAMSTARF VIÐ NOMESCO. Arið 1966 var á vegum Norðurlandaráðs stofnað til samstarfs- nefndar um skýrslugerðir meðal heilbrigðisstjórna Norðurlanda. Nefndin var kölluð NOMESCO, sem er stytting á Nordisk Medicinsk Statistisk Comité. Hlutverk heruiar er að vinna að samræmingu og samhæfingu á heilbrigðisskýrslum, skýrslum sjúkrahúsa, fæðinga- tilkynningum m.m., þannig að um sambærilega úrvinnslu yrði að ræða í framtíðinni af Norðurlanda hálfu. Island hefur því miður ekki tekið þátt í þessu samstarfi fyrr en á s.l. hausti, en verður fram- vegis fullur aðili að NOMESCO, samkvæmt ákvörðun landlæknis og heil- brigðisstjórnar. Innan NOMESCO hafa starfað undirnefndir, hver að sínu verk- efni. Ein þeirra hefur starfað frá 1966 að samræmingu á skráningu fæðinga á Norðurlöndum. Skýrsla um störf nefndarinnar birtist fyrri hluta árs 1971, (Medicinsk Eödselsregistrering), og er þar lýst tillögum hennar um nýja fæðingatilkynningu. Höfundum þessarar ritgerðar var ekki kunnugt um starf NOMESCO fyrr en á s.l. ári. 12

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.