Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Page 16

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Page 16
II. kafli. FÆEINGAR A ISLAUDI 1881 - 1971. II, 1. HEIMILDIR. Um fæðingar á Islandi hefur lítið verið ritað til þessa. Hafa höfundar því tekið saman til fróðleiks þær upplýsingar, sem handbærar eru um fólksfjölda og fólksfjölgun I landinu s.l. rúm 90 ár, ásamt því efni úr skýrslum, sem varða fæðingar, burðarmáls- dauða, mæðradauða og aldur mæðra. Ennfremur er lýst þróun fæðingastofnana og heimafæðinga I landinu. Við úrvinnslu á þeim upplýsingum, sem fæðingatilkynningar ársins 1972 gáfu, varð höfundum ljóst, að nauðsynlegt væri að kynna ofangreind atriði, til þess að sýna þá þróun, sem hefur átt sér stað. Þær heimildir, sem höfundar hafa einkum stuðst við eru: Heilbrigðisskýrslur frá 1881 - 1970, mannfjöldaskýrslur Hagstofu Islands 1911 - 1960 og upplýsingar frá Hagstofu Islands um sama efni fyrir áratuginn 1961 - 1970, sem eru I undirbúningi til prentunar. Einkum skal vísað til línurits um fólksfjölda, barnkomu og mann- dauða á íslandi 1751 - 1920 I Heilbrigðisskýrslu próf. Guðmundar Hannessonar 1911 - 1920, línurits um fólksfjölda, dánartölur og fæðingatölur 1751 - 1940, í Heilbrigðisskýrslu Vilmundar Jónssonar 1938, og ritgerðar próf'. Júlíusar Sigurjónssonar I Heilbrigt líf 1946 og línurits hans um ungbarnadauða 1838 - 1943 auk annarra gagna, sem getið er I heimildaskrá. 14

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.