Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Page 55
III, 2. ALDUR MÆÐRA.
Aldri mæðra á Islandi hefur verið lýst I kafla II, 8.
I töflu 14 er sýndur fjöldi fæðinga eftir aldri mæðra árið 1972,
ásamt hlutdeild hvers aldursflokks í heildarfjölda fæðinga.
Einnig er sýndur fjöldi kvenna í landinu í fimm ára aldurshópnum
Irá 15 ára til 49 ára og fæðingatíðni hvers aldurshóps.
Utan aldurshópsins 15-49 ára var aðeins ein fæðing á árinu (14 ára),
°g er hún talin með yngsta aldurshópnum.
Til samanburðar eru birtar samsvarandi tölur fyrir tímabilið
1966 - 1970.
Tafla 14.
Astæðan fyrir því, að þetta viðmiðunartímabil er valið,
er stí, að á árunum 1963 - 1965 koma í almenna notkun nýjar getn-
aðarvarnir, sem hafa haft afdrifarík áhrif á tíðni fæðinga.
Þess vegna er ekki raunhæft að nota lengra viðmiðunartímabil.
^ihygli vekur, að fæðingartíðni er nokkru lægri árið 1972 en á
viðmiðunartímabilinu, bæði undir tvítugsaldri og eftir 35 ára
aldur. Vegna takmarkaðs fjölda er þó þessi munur ekki marktækur.
Hins vegar hefur fæðingartíðni ai^kist (p<o.o5) I aldurshópnum
20-24 ára.
53