Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Page 94
V. kafli.
PTDRAT'TUR.
(Summary)
I í'yrsta kafla er lýst tilkomu nýrra fæðingartilkynninga
og samvinnu við WHO í G-enf um nýja skráningu fæðinga. Lýst er
nýrri mæðraskrá og barnaskrá, þar sem samræmt er mæðraeftirlit
og skráning fæðinga f landinu frá ársbyrjun 1972.
I öðrum kafla er birt yfirlit yfir fólksfjölda og fólksfjölgun
á Islandi frá árinu 1881. Sýndar eru tölur um fæðingartíðni og
dánartíðni 1881-1972 og um ungbarnadauða. Sundurliðaður er burð-
armálsdauði frá 1951 og mæðradauði sýndur frá 1881.
Þá er skýrð þróun fæðingastofnana í landinu og loks birtar töflur
um aldur mæðra á þessari öld.
I þriðja kafla er sýnd úrvinnsla ársins 1972.
Birtar eru töflur og línurit um dreifingu fæðinga, aldur mæðra,
fæðinga í og utan hjónabands, fjölda námsára mæðra og fæðingar-
fjölda. Þá er rædd lengd meðgöngu og áhrif mæðraeftirlits á
burðarmálsdauða og samanburður gerður á forskoðunum, aldri mæðra,
fæðingafjölda og fjölda námsára. Sýndar eru töflur um þau afbrigði
meðgöngu og fæðingar, sem skráð voru £ fæðingartilkynningu skv.
s júkdómsflokkun V/HO.
Xmsar athuganir eru birtar á kyni nýbura, þyngd og lengd.
Taldar eru fjölburafæðingar og meðfæddur vanskapnaður og sjúkdómar
nýbura og sundurliðaðar töflur um burðarmálsdauða.
V£sast til taflna og línurita í einstökum köflum um öll þessi at-
riði.
Loks eru í niðurstöðum ræddir kostir og gallar, sem í Ijós komu
við úrvinnslu og getið væntanlegra úrbóta og framtíðar úrvinnslu.
92