Fréttablaðið - 26.11.2022, Síða 4

Fréttablaðið - 26.11.2022, Síða 4
JEEP.IS • ISBAND.IS PLUG-IN HYBRID FÆRÐIN ER ALLTAF GÓÐ EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! Leyfðu Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid að spreyta sig á krefjandi slóðum. Leiðin verður rafmögnuð. ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 n Tölur vikunnar n Þrjú í fréttum 116 höfðu á fimmtudag verið sektaðir fyrir að nota nagladekk utan leyfi­ legs tíma á þessu ári. 300 þúsund rúmmetrar af grjóti fara í stækkun brimvarnargarða við Þorlákshöfn. 42,8 prósent sem svöruðu í könnun Prósents segjast hlynnt aðild að ESB en 35,1 prósent er andvígt. 21 sinni hraðari vöxtur er í sölu notaðs fatnaðar í Bandaríkjunum en á nýjum varningi síðustu þrjú árin. 31.416 milljarðar króna eru sagðir hafa farið í að halda HM sem nú stendur yfir í Katar. m3 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er gagnrýndur eftir að peninga- stefnunefnd bankans hækk- aði stýrivexti um 0,25 prósentustig. „Ef við myndum ekki standa að baki verðgildi peninganna þá fer verðbólgan í hæstu hæðir og kjarasamningar yrðu algjörlega vonlausir,“ sagði Ásgeir. Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands samdi við þáverandi fjár- málastjóra um að fjármálastjór- inn gæti hætt og fengið samt sjö mánaða laun. Samningurinn jafngildir nær tuttugu milljónum króna og málið vekur óánægju innan kirkjunnar. „Þetta er bara venjulegur, eðlilegur samningur,“ sagði Agnes. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra lagði til í mann- réttindaráði Sameinuðu þjóðanna, fyrir hönd Íslands í samvinnu við utan- ríkisráðherra Þýskalands, að hafin yrði gagnaöflun svo draga mætti til ábyrgðar þá sem standa gegn ofsóknum gegn almenningi í Íran. Tillagan var samþykkt. „Það er ofvaxið mínum skilningi að stjórn- völd í nokkru ríki ákveði að brjóta svo víðtækt og alvarlega á mann- réttindum borgaranna,“ sagði Þórdís í ávarpi sínu í mannrétt- indaráðinu. n Gestur Jónsson, hæstaréttar­ lögmaður Ragnar Halldór Hall, hæstarétt­ arlögmaður Ása Ólafsdóttir, hæstaréttar­ dómari og for­ maður réttar­ farsnefndar Tveir hæstaréttarlögmenn telja það fara gegn þrískipt- ingu ríkisvaldsins að hæsta- réttardómari hafi haft frum- kvæði að frumvarpi um að endurupptökudómstóll geti vísað málum til Landsréttar. Þá vara þeir við því að málið fái flýtimeðferð á Alþingi. benediktarnar@frettabladid.is DÓMSTÓLAR Lögmennirnir Gestur Jónsson og Ragnar Halldór Hall telja að vegna þrískiptingar ríkisvaldsins hafi það verið óviðeigandi að hæsta- réttardómarinn Ása Ólafsdóttir hafi komið að frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð sakamála og farið gegn þrískiptingu ríkisvalds- ins með þeim hætti. Forsaga málsins er sú að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra lagði fram frumvarp þann 14. nóv- ember um breytingu á lögum um meðferð sakamála, í kjölfarið á því að nokkrum af hinum svokölluðu hrunsmálum hafi verið vísað frá vegna ólíkrar túlkunar Hæstarétt- ar og endurupptökudóms á lögum. Nýlega vísaði Hæstiréttur af tæknilegum ástæðum frá tveimur málum sem endurupptökudómur hafði vísað til hans. Í úrskurði endurupptökudóms var vísað til þess að í lögum um endurupp- töku mála segir að heimilt sé að vísa máli sem dæmt hefur verið í Hæstarétti til meðferðar og dóms- uppsögu „að nýju“ í Landsrétti. Þannig hafi endurupptökudómur túlkað ákvæðið á þann hátt að það feli aðeins í sér að mál sem hafi sætt meðferð og dómsuppsögu í Lands- rétti geti verið endurupptekin þar. Þarna myndaðist ákveðin patt- staða á milli tveggja jafnsettra dómstóla. Í frumvarpi dómsmálaráðherra var lagt til að ef endurupptöku- Telja óviðeigandi að Hæstiréttur segi löggjafarvaldinu fyrir verkum Frumvarp dómsmála­ ráðherra um að endurupp­ tökudómur geti vísað málum til Landsréttar hefur vakið mikla athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA dómur telur að mál sem dæmt hefur verið í Hæstarétti fyrir 1. janúar 2018 og uppfyllir skilyrði til endur- upptöku, er dóminum heimilt að vísa málinu til meðferðar og dóms- uppsögu í Landsrétti. Í gær barst umsögn um frumvarp- ið frá Sigríði J. Friðjónsdóttur ríkis- saksóknara þar sem kemur fram að hún sé samþykk þeim breytingum sem komi fram í frumvarpinu og að hún taki að öllu leyti undir þær röksemdir fyrir lagabreytingum sem komu fram í greinargerð frum- varpsins. Þá telur ríkissaksóknari brýnt að frumvarpið fái skjótan framgang á Alþingi. Í umsögn lögmannanna Gests Jónssonar og Ragnars Halldórs Hall segja þeir að sérstök ástæða sé til þess að vara við því að málið fái einhvers konar flýtimeðferð hjá Alþingi, þar sem það varðar grund- vallarmannréttindi og þarfnist gaumgæfilegrar athugunar nefnd- arinnar. Þá kasta Gestur og Ragnar því fram að þeir hafi heimildir fyrir því að í kjölfar uppkvaðningar úrskurð- ar endurupptökudóms í máli Ívars Guðjónssonar hafi einn af dómur- um Hæstaréttar haft samband við stjórnendur í dómsmálaráðuneyt- inu og óskað efir fundi með hraði. Taldi dómarinn, Ása Ólafsdóttir, að nauðsynlegt væri að bregðast með hraði við þeirri „togstreitu“ sem skapast hefði milli Hæstaréttar og endurupptökudóms. „Vegna þrískiptingar ríkisvalds- ins orkar það mjög tvímælis að dómarar Hæstaréttar skuli telja það viðeigandi að þeir segi stjórn- völdum og löggjafarsamkomunni fyrir verkum á þann hátt sem birtist í þessu lagafrumvarpi,“ segja lög- mennirnir og bæta við að það sé hlutverk dómstóla að túlka lögin, ekki setja þau. Þá benda þeir einnig á að Ása, sem er formaður réttarfarsnefndar, hafi haft frumkvæði að frumvarpinu og sé væntanlega höfundur meginefnis þess. Ef nefndarmenn í allsherjar- og menntamálanefnd sjái ástæðu til þess að bæta við sérstaka laga- ákvæðinu sem kemur fram í frum- varpinu, þá leggja Gestur og Ragnar til að endurupptökudómur geti vísað málum til Landsréttar „ef þess er óskað af hálfu endurupptöku- beiðanda“. n 4 Fréttir 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.