Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 8

Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 8
Það eru mörg tungu- mál í gangi, bæði hjá börnunum og starfs- fólki, en við höfum aldrei haft jafn mörg börn sem hafa enga íslensku á heimilinu. Halldóra Guð- mundsdóttir, leikskólastjóri Drafnarsteins Meðal þeirra tungumála sem töluð eru á Drafnarsteini eru farsi, telúgú, gújaratí og hebreska. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Tuttugu tungumál eru töluð á leikskólanum Drafnarsteini í Reykjavík. Leikskólastjóri segir fjölda tví- og fjöl- tyngdra barna aldrei hafa verið meiri. Tæplega fjörutíu prósent barna á leikskól- anum hafi annað tungumál en íslensku að móðurmáli. erlamaria@frettabladid.is SKÓLAMÁL Halldóra Guðmunds- dóttir, leikskólastjóri leikskólans Drafnarsteins í Vesturbænum í Reykjavík, segir vaxandi fjölmenn- ingu hér á landi sýna sig hvað best í þeim fjölbreytileika sem finnist á leikskólanum. Tæplega fjörutíu pró- sent barna séu af erlendum uppruna, sem sé nýr veruleiki í leikskólastarfi. Þá telji starfsmannahópurinn níu mismunandi þjóðerni. „Það eru mörg tungumál í gangi, bæði hjá börnunum og starfsfólki, en við höfum aldrei haft jafn mörg börn sem hafa enga íslensku á heim- ilinu. Í haust var því komið að því að við þurftum að taka ákvörðun um málstefnu. Hingað til hefur ekkert þurft að ræða þetta, en svo allt í einu er maður kominn með ein- hvern veruleika þar sem þetta þarf að ræða,“ segir Halldóra. Af þeim sökum hafi leikskólinn tekið upp íslenska málstefnu, sem Halldóra segir að hafi verið nauð- synlegt. „Við sáum það aðeins gerast í fyrra að börn af erlendum upp- runa, sem voru kannski að baksa við íslenskuna, voru farin að leika sér á einhverju Youtube-tungumáli. Þetta fannst okkur mjög áhugavert því við erum bæði sögu- og þjóð- söguskóli og erum mjög upptekin af málþroska og málörvun og vinnum okkar starf í gegnum íslenskar þjóð- sögur,“ segir Halldóra. Slíkt sé gríðarleg áskorun þar sem börnum, sem ekki hafa íslensku að móðurmáli, fjölgi með hverju árinu. „Ég held að þetta sé bara þróunin á Íslandi yfir höfuð. Fleiri þjóðir koma og núna finnur maður það í samfélaginu að við erum til dæmis að fá fjölda flóttamanna til lands- ins, bæði frá Úkraínu og Venesúela,“ segir Halldóra. Meðal þeirra tungumála sem börnin hafa að móðurmáli eru enska, finnska, spænska, pólska, arabíska, farsi, lettneska, danska, telúgú, gújaratí og hebreska, svo fáein séu nefnd, og segir Halldóra áhugavert að sjá hvað fjöldatitillinn breytist frá ári til árs. „Franska á fjöldatitilinn núna, en hún er töluð hjá f lestum þeim sem eru tví- og fjöltyngd. Áður var titillinn pólska og enska, en það er gríðarlega skemmtilegt að sjá hvern- ig þetta breytist,“ segir Halldóra. Að sögn Halldóru hefur innleiðing íslenskrar málstefnu á leikskólanum gengið vonum framar og segir hún börnin aðlagast vel. „Þau eru náttúrlega ótrúlega dug- leg og fljót að aðlagast. Þó að þau séu kannski ekki komin með íslenskuna þá læra þau ofsalega f ljótt á dags- skipulagið. Á öllum deildum er myndrænt dagsskipulag, þannig að þau sjá á myndum hvernig dagurinn rúllar,“ segir Halldóra. Þá fái þau börn sem hafi engan bakgrunn í íslensku bókina Ljáðu mér orð, sem Halldóra segir að sé í raun þeirra orðabók með myndum. Þrátt fyrir að leikskólinn hvetji börnin til að tala íslensku á leikskóla- tíma segir Halldóra þeim alls ekki bannað að tala móðurmál sitt. Nauð- synlegt sé að hafa sveigjanleika. „Við erum alls ekki að banna börnunum að tala annað tungumál sín á milli, heldur meira minnum við þau á að við ætlum að tala íslensku í skólanum. Koma því mjúklega til leiðar, þegar börnin eru til dæmis í leik í hóp, að tala íslensku svo allir geti verið með,“ segir Halldóra. n Tuttugu tungumál eru töluð á Drafnarsteini AÐVENTU- OG JÓLATÓNLEIKAR BACH Á AÐVENTUNNI Sunnudagur 27. nóvember kl. 17 Kór Hallgrímskirkju Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran Eggert Reginn Kjartansson, tenór Fjölnir Ólafsson, barítón Barokkbandið Brák Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðla Steinar Logi Helgason, stjórnandi Björn Steinar Sólbergsson, orgel Aðgangseyrir 4.000 kr. KLAIS ORGELIÐ Í 30 ÁR – CÉSAR FRANCK 200 Orgelmaraþon Laugardagur 3. desember kl. 12–15 Björn Steinar Sólbergsson Erla Rut Káradóttir Eyþór Franzson Wechner Friðrik Vignir Stefánsson Guðný Einarsdóttir Kári Þormar Kitty Kovács Kjartan Jósefsson Ognibene Lára Bryndís Eggertsdóttir Matthías Harðarson Steinar Logi Helgason Tuuli Rähni Ókeypis aðgangur SYNGJUM JÓLIN INN Kórsöngur, almennur söngur og lestrar Sunnudagur 18. desember kl. 17 Kór Hallgrímskirkju Steinar Logi Helgason, stjórnandi Kór Breiðholtskirkju Örn Magnússon, stjórnandi Kór Neskirkju Steingrímur Þórhallsson, stjórnandi Björn Steinar Sólbergsson, orgel Ókeypis aðgangur ORGELTÓNLEIKAR Á JÓLUM 26. desember – Annar í jólum kl. 17 Björn Steinar Sólbergsson, orgel Aðgangseyrir 3.000 kr. HÁTÍÐARHLJÓMAR VIÐ ÁRAMÓT 31. desember – Gamlársdagur kl. 16 Gunnar Kristinn Ólafsson, trompet Ólafur Elliði Halldórsson, trompet Gunnar Helgason, básúna Steinn Völundur Halldórsson, básúna Björn Steinar Sólbergsson, orgel Aðgangseyrir 4.000 kr. Miðasala: www.tix.is www.hallgrimskirkja.is ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR UM HÁTÍÐARNAR kristinnpall@frettabladid.is REYKJAVÍK Kolbrún Baldursdóttir lýsti yfir furðu sinni á seinagangi í svörum þegar henni barst loksins svar við fyrirspurn sinni á fundi borgarráðs í vikunni, rúmum þrem- ur árum eftir að hún lagði fyrir- spurnina fram. Kolbrún segir þetta leið til að þagga niður viðkvæm mál. Kolbrún lagði fram fyrirspurn um úthlutun fjármuna til grunn- skóla Reykjavíkur á haustdögum 2019 og barst svar á síðasta fundi borgarráðs, þremur árum, tveimur mánuðum og tólf dögum síðar. Eðli- lega er beðist afsökunar á því hvað málið tók langan tíma áður en rök- stuðningurinn hefst. Í kjölfarið lýsti Kolbrún yfir óánægju sinni í bókun. „Svarið nú eftir fjögur ár er bæði loðið og í raun útúrsnúningur. Skóla- og frí- stundasvið hélt utan um skjal með breytingum frá 2018 og óskum skólastjóra um viðbótarfjármagn. Flokkur fólksins óskaði eftir að fá að sjá þetta breytingaskjal skóla- og frí- stundasviðs og hvaða meðferð óskir skólastjóra fengu, hvaða óskir voru samþykktar og hverjum var hafnað. En það fékkst aldrei.“ n Fékk loks svör þremur árum síðar odduraevar@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir umgangs- pestir líkt og inflúensu og RS-veir- una svokallaða skæðar í nágranna- löndunum, líkt og hér heima og vestanhafs í Bandaríkjunum. Blaðið ræddi í vikunni við yfir- lækni á Barnaspítala Hringsins sem sagði álagið mikið vegna pesta. Þá var greint frá því í gær að hið sama væri upp á teningnum í Bandaríkj- unum en barnalæknar hafa hvatt Joe Biden Bandaríkjaforseta til að lýsa yfir neyðarástandi vegna útbreiðslu RS-veirunnar. „Eins og spáð hefur verið stefnir í að þennan fyrsta vetur án sótt- varnaaðgerða vegna Covid-19 leggist árstíðabundnar öndunar- færasýkingar af fullum þunga á landsmenn,“ segir Guðrún í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins um ástand hér á landi og í nágranna- löndum. Guðrún segir Embætti landlæknis munu gefa út vikulegt yfirlit yfir stöðuna vegna pesta hér á landi. Þar kemur meðal annars fram að inflúensan sé farin af stað í Evrópu almennt, ástandið sé misjafnt eftir löndum. Þá geisar Covid-19 áfram en smitum og dauðsföllum hefur fækkað en innlagnir staðið í stað. RS-veiran greinist í mörgum löndum og í sumum má sjá aukn- ingu á tilfellum og innlögnum fyrr en venjulega, sérstaklega hjá börn- um yngri en fimm ára. „Á Norður- löndum hefur RS-veiran verið skæð í Danmörku og inflúensa er byrjuð að greinast. Norðmenn voru búnir að spá að þessar veirur myndu skella á með þunga þar einnig,“ segir Guð- rún. n Öndunarfærasýkingar færa sig upp á skaftið í nágrannalöndunum Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir 8 Fréttir 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.