Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 10
Til sölu hótelrekstur
og fasteign
Íslandsbanki kynnir til sölu fasteign og rekstur á
201 Hóteli í Kópavogi.
Um er að ræða sölu á félögunum L1100 ehf. sem á
fasteignina að Hlíðarsmára 5-7 og 201 Hótel ehf. sem sér
um rekstur hótelsins. Hótelið tók til starfa í lok árs 2017
eftir stórfelldar endurbætur og stækkun á fasteigninni.
Hótelið er búið 102 rúmgóðum herbergjum og er
fasteignin samtals 3.867 m2 að stærð.
Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við
fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka í gegnum netfangið
201hotel@islandsbanki.is
Framleitt af Góu
Forseti Evrópuráðsþingsins
telur mikilvægt að endur-
hugsa tilgang ráðsins. Innrás
Rússa hafi breytt öllu. Telur
hann að Rússar verði látnir
gjalda fyrir stríðsglæpi.
lovisa@frettabladid.is
EVRÓPURÁÐIÐ Tiny Kox, forseti Evr-
ópuráðsþingsins, segir mikilvægt að
styrkja á ný og endurhugsa tilgang
Evrópuráðsins. Ráðið var sett á
stofn í kjölfar seinni heimsstyrjald-
arinnar og stendur nú á ákveðnum
tímamótum. Með stofnun ráðsins
hafi nýju kerfi verið komið á þar
sem ríkin treystu á hvert annað og
vernduðu hvert annað. Það kerfi
snýst um marghliða samvinnu.
„Í þessu kerfi ætlar enginn að vera
sterkari en hinn. Ísland er gott dæmi
um land sem virkar vel í þessu fyrir-
komulagi. Þið eruð ekki með neinn
her en líður samt eins og þið séuð
örugg og þið eruð það því restin af
heiminum hefur lýst því yfir að þau
ætli ekki að ráðast á ykkur,“ segir
Kox og að hingað til hafi það virkað.
Á næsta ári fer fram leiðtoga-
fundur Evrópuráðsins á Íslandi.
Um er að ræða fyrsta leiðtogafund
ráðsins í nærri 20 ár og segir Kox að
þetta kerfi verði eitt af því sem verði
á borðinu.
Kox segir að marghliða sam-
vinna ríkja, eins og Evrópuráðið sé
byggt á, hafi virkað í nærri 80 ár en
að nú hafi Rússar ákveðið að þeim
þyki það ekki virka lengur og hafi
í kjölfarið ráðist inn í Úkraínu. Því
þeir vilji ná sínu fram með öðrum
leiðum.
Spurður hvort að hann telji líklegt
að hægt verði að sannfæra Rússa
aftur um að marghliða samstarf
sé betra, segir Kox að hann telji að
Rússar viti nú þegar að þeir muni
ekki vinna þetta stríð.
Evrópuráðið lýsti því yfir í októ-
ber í ályktun að ríkisstjórn Rúss-
lands væri hryðjuverkaríkisstjórn.
Kox segir þetta hafa verið mikilvægt
skref og að þetta muni skipta miklu
máli þegar Rússar verða dregnir
fyrir dómstól vegna stríðsglæpa
sinna í Úkraínu. Sama hvort það
verði fyrir sérstakan dómstól eða
dómstólinn í Haag. n
Telur marghliða samvinnu
ríkja vera mikilvægasta
Tiny Kox, forseti
Evrópuráðs-
þingsins
Evrópuráðið lýsti Kremlarstjórn sem hryðjuverkastjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
10 Fréttir 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ