Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 26

Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 26
Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun n Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Bretland er í kreppu sem ekki sér fyrir endann á. Tónlistar- menn á borð við Robbie Williams og Fatboy Slim, sem áður skreyttu sig fjöðrum mann- réttinda- baráttu samkyn- hneigðra, skemmta nú í Katar. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Á dánarbeðinum sendi Steve Jobs sjálfum sér tölvupóst. Í póstinum skrifaði stofnandi tölvurisans Apple af auðmýkt um framlag sitt til mannlegs samfélags. „Ég rækta ekki matinn sem ég borða,“ skrifaði Jobs. „Ég bjó ekki til tungumálið sem ég tala. Ég upp- götvaði ekki stærðfræðina sem ég nota. Ég er varinn með lögum sem ekki eru mín hugar- smíð … Ég elska og dáist að tegund minni, fólki lifandi og liðnu, og er undir því kominn um líf og velferð.“ Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu er hafið. Mótið sem fram fer í Katar er umdeilt vegna bágs ástands mannréttinda þar í landi. Talið er að 6.500 farandverkamenn hafi látið lífið við byggingu mannvirkja fyrir keppnina. Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri, líkir meðferð á verkamönnum í Katar við þrælahald í sam- tali við RÚV og segir fótboltaáhugafólk vera í sömu stöðu og væri því boðið til veislu þar sem framreiddur væri þjófstolinn matur og þrælar þjónuðu til borðs. Bann við samkynhneigð í Katar hefur einnig vakið athygli. Einn talsmanna mótsins fullyrti að samkynhneigð stafaði af skemmd í heila. Breskur baráttumaður fyrir réttindum samkynhneigðra var nýverið handtekinn í Katar og honum gert að yfirgefa landið. Gestum mótsins hefur verið skipað að fara úr fatnaði í regnbogalitunum. En þrátt fyrir illan orðstír virðist lítill skortur á fólki sem tilbúið er að kenna sig við mótið. Fyrrverandi fótboltastjarnan David Beckham er sakaður um að hvítþvo Katar en hann er sagður hafa fengið greidda 26 milljarða íslenskra króna fyrir að vera andlit mótsins. Tónlistarmenn á borð við Robbie Williams og Fatboy Slim, sem áður skreyttu sig fjöðrum mannréttindabaráttu samkyn- hneigðra, skemmta nú í Katar. Við Íslendingar eigum ekki lið á Heims- meistaramótinu. Við eigum þó okkar fulltrúa í orðsporsþvottahúsinu. Á RÚV var nýverið greint frá því að listamaðurinn knái Ólafur Elíasson sýndi nýtt 150 metra langt stállista- verk í Katar í tengslum við mótið. Prófessor við Listaháskóla Íslands sagðist ekki álasa Ólafi fyrir þátttöku í Katar. „Við skulum hafa í huga að Ólafur Elíasson er risastórt fyrir- tæki, þetta eru yfir 300 manns sem vinna hjá honum. Það segir sig sjálft að það þarf peninga til að láta þetta ganga.“ Og KSÍ lætur ekki sitt eftir liggja. Sendinefnd á vegum sambandsins var í góðum gír á opnunarleik mótsins. Arfleifð ekki byggð á orðum Heimasíðu til minningar um Steve Jobs var nýverið hleypt af stokkunum. Á síðan að tryggja arfleifð Jobs en þar er m.a. að finna fyrrnefnt bréf. Hefði Jobs hins vegar lifað eins og hann dó þyrfti enga heimasíðu til að fram- lag hans skilaði sér til komandi kynslóða. „Ég fann ekki upp hálfleiðarann, örgjörv- ann, hlutbundna forritun eða nokkra þá tækni sem ég vinn með,“ skrifaði Jobs af þakklæti dýrlings þegar hann lá banaleguna. En arfleifð er ekki byggð á orðum. Öll helsta tækni sem liggur til grundvallar raftækjum Apple – internetið, GPS-tæknin, snertiskjárinn – byggir á afrakstri rannsókna sem fjármagnaðar voru með skattfé. Engu að síður leitaðist Steve Jobs alla ævi við að komast hjá því að greiða skatta. Hefði Jobs hins vegar greitt sinn skerf til samfélagsins hefði arfleifð hans orðið áþreifanleg; nýjar vísindarannsóknir, menntun ungs fólks, kannski næsti Steve Jobs. Vatnsbrúsa hannaðan af Ólafi Elíassyni fyrir HM í Katar má kaupa á internetinu fyrir 5.800 krónur. Mannréttindum veraldar stafar ekki hætta af einræðisherrum í Katar; það verður ekki með einu þungu slagi sem mann- réttindum er veitt náðarhögg. Dauði mann- réttinda mun verða af þúsund skrámum veittum af þeim sem frestuðu fram á dánar- dægur að þróa með sér sómakennd. n Þúsund skrámur Pantanir fyrir hópa og fyrirtæki á hafsteinn@betristofan.com eða í síma 779 2416 Því er svo farið í stjórnmálum síðari tíma að lyginni vex ásmegin. Þessa sér stað bæði vestan hafs og austan. Og birtingarmyndin er auðvitað lyginni líkust. Hagur Bretlands nú um stundir er sárgrætilegt dæmi um afleiðingar þessara lyga, en þar óðu andstæðingar Evrópusambandsins uppi með einhverja skreytnustu skrökvísi sem sögur fara af í seinni tíma þjóðmálaumræðu. Ekki reyndist flugufótur vera fyrir upphróp- unum þeirra eftir að stór hluti þjóðarinnar hafði verið fíflaður til að greiða einangruninni atkvæði. Og eftir stendur hrakið heimsveldi sem rekur lestina innan OECD hvað efnahagsþróun varðar. Pótintátar Brexit fullyrtu að heilbrigðis- kerfið myndi batna við útgöngu, skattar myndu lækka, launin batna og orkuverð falla. Ekkert af þessu gekk eftir. Sömu orðhákarnir héldu því fram að matar- verð myndi lækka til muna eftir að Brusselvald- inu sleppti og kaupmáttur almennings ykist þar af leiðandi. Hvorugt hefur gerst. Brexit-sinnarnir hrópuðu líka hástöfum að útgangan yki tækifæri nýrra kynslóða, enda myndi opinber þjónusta eflast til muna og við þeim blasa samfélag sem þeir gætu loksins verið stoltir af. Allir þekkja nöturlega andstæðuna sem breska þjóðin skammast sín núna fyrir. Og þessir pólitísku lygamerðir voru auðvitað einnig á því að það kæmist á pólitískt jafnvægi í Bretlandi eftir að það segði skilið við Evrópu- sambandið. Þjóðmálaóróleikinn, allt frá tíma Tony Blair, yrði loksins að baki og stöðugleiki í stjórnmálum kæmist á. Allir þekkja hvernig fór – og hvað enn þá gengur á. Bretland er í kreppu sem ekki sér fyrir endann á. Efnahagur landsins hefur sokkið svo djúpt að það kæmist ekki aftur inn í Evrópusambandið þótt meirihluti landsmanna kærði sig um það. Eitt af skilyrðum sambandsins fyrir aðild er að umsóknarþjóðir skuldi ekki nema sextíu pró- sent af landsframleiðslu. Því er ekki að heilsa hjá nýju og einangruðu Bretlandi, en skuldir þess eru nú hundrað prósent af landsframleiðslu. Og sér raunar ekki fyrir endann á þeim gríðarlega fjárhagsvanda. Enn ein birtingarmynd þessa ótrúlega klúðurs að yfirgefa sína nánustu í álfunni er ákafi ráða- manna á Norður-Írlandi, Skotlandi og Wales að komast burt frá þessu rugli öllu saman – og standa fremur á eigin fótum en að reiða sig áfram á íhaldsóvissuna í Downingstræti. Og það er líkleg sviðsmynd að Brexit skilji Eng- land eftir eitt og yfirgefið, smánað og fátækara en áður. En það er lyginni líkast. n Pólitísk lygi SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.