Fréttablaðið - 26.11.2022, Side 40

Fréttablaðið - 26.11.2022, Side 40
í vinahópi, þekkjum sama fólkið og svo erum við bara byrjuð saman svona hálfu ári seinna,“ segir Aron sem ljómar þegar hann talar um Ernu Maríu. Og hvernig brást systir þín við? „Henni fannst þetta kannski pínu pirrandi fyrst en svo var þetta bara geggjað og þær aftur orðnar bestu vinkonur.“ Tyrkland í hjartanu Aron hefur alla tíð búið á Íslandi en pabbi hans er frá Tyrklandi, hann talar tyrknesku og segir hjartað slá jafnt fyrir Ísland og Tyrkland. „Mamma mín fór í skiptinám til Tyrklands og þar kynntist hún pabba. Hann átti plötubúð og þar kynnast þau, á Bağdat Caddesi sem er svona gata eins og Laugavegurinn í Istanbúl,“ segir Aron. „Þau bjuggu í Tyrklandi í nokkur ár, mamma, pabbi og systir mín, svo f luttu þau hingað og ég kom í heiminn og við höfum alltaf búið hér en verið mjög dugleg að fara og heimsækja ömmu og afa og frænkur og frændur, ég á risastóra fjölskyldu í Tyrklandi,“ segir hann og bætir við að það sé orðið alltof langt síðan hann hafi farið í heimsókn. „Það er bara eitthvað svo geggjað að hugsa til þess að maður eigi heila fjölskyldu þarna og ég elska að vera þarna, borða matinn hennar ömmu og svona, það er bara geggjað.“ Aron segist mjög þakklátur fyrir að foreldrar hans hafi kennt honum tyrknesku og að hann hafi haldið henni við. „Maður græðir alltaf á því að tala f leiri en eitt tungumál. Ég tala reglulega við ömmu og afa í símann á tyrknesku og svo tölum við pabbi eiginlega okkar eigið tungumál. Hann kannski segir eitthvað á tyrknesku og ég svara á íslensku og þetta blandast allt saman,“ segir hann. Spurður að því hvort hann hafi fundið fyrir einhvers konar for­ dómum vegna uppruna síns í gegnum tíðina segir Aron svo vera en ekki á neikvæðan hátt. „Ég man ekki eftir neinu neikvæðu varðandi það sem betur fer. Mér fannst alltaf Aron og Erna María hafa verið saman í sex ár og eru samheldið par. Þau eru afar spennt fyrir foreldrahlutverkinu. 1.300 manns mættu á tónleika Arons Can í Hörpu um síðustu helgi. Hann segist aldrei hafa skemmt sér jafn vel. Mynd/Aðsend Aron Can er tyrkneskur í föðurætt og á stóra fjölskyldu í Tyrklandi. Hann segir hjartað slá jafnt fyrir Ísland og Tyrkland og er þakklátur fyrir að kunna tungumál þjóðanna beggja. FréttAblAðið/eyþór bara geggjað að vera aðeins brúnni en hinir og að kunna tvö tungumál.“ Stefnir enn hærra Um síðustu helgi hélt Aron Can tón­ leika í Hörpu, þangað mættu 1.300 manns. Hann segir það hafa verið ótrúlega tilfinningu að sjá fullan Ég elska að vera tón- listarmaður á Íslandi en tækifærin eru takmörkuð út af smæðinni svo ég stefni bara enn hærra. sal af fólki sem allt var komið til að berja hann augum. „Þetta var tryllt,“ segir hann. „Mig hefur svo lengi langað að gera þetta, hef hugsað um þetta í mörg ár, svo ég setti standardinn mjög hátt og vildi hafa þetta eins flott og ég gat,“ segir Aron. „Það er sturluð tilf inning að standa uppi á sviði og heyra þrett­ án hundruð manns syngja lögin þín. Þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir hann. „Ég bara trúði því ekki þegar það seldist í alvörunni upp, ég hugsaði bara með mér: Hvað er að gerast? Hvar er ég núna? Þetta var svo súrr­ ealískt. Að þrettán hundruð manns séu til í að borga peninga til þess að koma og hlusta á mig á tónleikum í tvo klukkutíma er ótrúlegur sigur og ég er fullur þakklætis.“ Þrátt fyrir mikla velgengni virðist Aron ná að halda báðum fótum á jörðinni og láta frægðina ekki stíga sér til höfuðs. „Ég hef bara alltaf verið frekar slakur gaur,“ segir hann. „Held bara áfram að gera það sem ég er að gera og er mjög ýktur í því,“ segir Aron sem vaknar klukkan fimm á hverjum morgni og er kom­ inn í ræktina klukkan sex. „Og svo er ég vanalega kominn upp í rúm fyrir tíu á kvöldin. Þetta er ekki þessi týpíski rokkstjörnulífsstíll en þetta er það sem hentar mér og svona get ég verið með marga bolta á lofti í einu.“ En hvað er fram undan? „Það er auðvitað föðurhlutverkið og svo var ég að opna veitingastað,“ segir Aron en hann opnaði nýlega veitingastaðinn Stund ásamt Ernu Maríu, Aroni Má Ólafssyni (Aroni Mola) og Hildi Skúladóttur. „Mig hefur alltaf langað að fara í einhvern „business“ svo við stukkum á þetta þegar tækifærið gafst. Þetta er bæði gaman en svo er mikilvægt að hafa eitthvað svona til hliðar við tónlistina, eitthvað áreiðanlegra,“ segir Aron. „Ég get ekki treyst á það að ég hafi alltaf nóg að gera eða að fólk vilji enda­ laust hlusta á mig en ég reyni að passa vel upp á peningana mína og vera skynsamur.“ Spurður hvort hann sjái fyrir sér tónlistarframa erlendis segist Aron vera að vinna í því. „Ég er búinn að halda tvenna tónleika í Osló, tvenna í Bergen og eina í Danmörku og mig langar mikið að taka þessa tónleika sem ég var með í Hörpu og fara með þá út,“ segir hann. „Mér var tekið mjög vel, sérstak­ lega í Noregi, en þar er senan mjög stór svo núna er ég að vinna í því að stækka. Ég elska að vera tónlistar­ maður á Íslandi en tækifærin eru takmörkuð út af smæðinni svo ég stefni bara enn hærra,“ segir Aron. n 40 Helgin 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.