Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 43
KYNN INGARBLAÐ
ALLT Jól
í Kópavogi
LAUGARDAGUR 26. nóvember 2022
Marta B. Marteinsdóttir heldur hér á vinsælustu vörunum sem Íslendingar geta ekki verið án um jólin. ORA grænar baunir og Sæmundur í jólafötunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
ORA baunadós í jólabúningi og
klæðist umbúðum fyrri ára
Allir Íslendingar þekkja ORA vörur og hafa alist upp við þær, enda fyrirtækið 70 ára. Hefð
er fyrir grænum baunum með jólamatnum hér á landi sem skapaðist líklega af því að ekki
var mikið grænmeti á boðstólum áður fyrr, sérstaklega yfir háveturinn. 2
Prent og vinir bjóða gestum upp á
að glæða gamla hluti lífi með því að
silkiprenta fatnað og pappír.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
jme@frettabladid.is
Ýmislegt skemmtilegt verður um
að vera í Norræna húsinu í aðdrag-
anda jólanna. Á morgun verður
haldinn sérstakur jólahringrásar-
markaður. Það verður því hægt
að verja þessari fyrstu aðventu á
skemmtilegan hátt.
Prent og vinir bjóða upp á silki-
prent fyrir gesti og gangandi. Gest-
ir mæta þá með gamlar flíkur, boli
og annan textíl úr eigin fórum og
glæða nýju lífi með því að prenta
fallegar og skemmtilegar myndir á
það. Þátttakendur geta einnig silki-
prentað á pappír og er um að gera
að koma með pappírspokasafnið
og búa til gjafapoka, jólakort og
merkimiða fyrir gjafirnar.
Falinn fjársjóður
Leynist fjársjóður í geymslunni?
Á morgun verður einnig haldinn
jólaskiptimarkaður þar sem gestir
geta komið með eigin hluti sem
eru hættir að nýtast þeim og skipt
út fyrir eitthvað annað. Því það
sem nýtist ekki lengur gæti vel
reynst fjársjóður annars, og öfugt.
Flest eigum við til dæmis bækur
sem við erum búin að lesa, leik-
föng sem börnin eru hætt að leika
sér með eða spil sem henta ekki
lengur. Hér er líka kjörið tækifæri
til þess að finna umhverfisvænar
jólagjafir með sögu sem þú getur
sett undir jólatréð með góðri sam-
visku.
Sónó Matseljur verða einnig með
sérstakan jólamatseðil og jóla-
drykki í boði. n
Jólamarkaður í
Norræna húsinu
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is