Fréttablaðið - 26.11.2022, Side 46

Fréttablaðið - 26.11.2022, Side 46
Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Ísak Aron Jóhannsson landsliðskokkur kom, sá og sigraði eftirréttakeppni Garra sem haldin var á Stór- eldhússýningunni á dög- unum. Nú er hann farinn út á vegum kokkalandsliðsins að keppa á heimsmeistara- móti í matreiðslu og hefur staðið í ströngu síðustu vikur í undirbúningi fyrir keppnina. Ísak galdrar hér fram einn sáraein- faldan jólaeftirrétt fyrir lesendur sem steinliggur. Ísak segir að hann hafi ávallt haft ástríðu fyrir matar- gerðinni. „Ég hef ávallt verið mikið í eldhúsinu, allt síðan ég var lítill strákur. Amma mín á Súgandafirði var alltaf að baka eða elda og ég fékk að vera með í því. Að henda í pönnukökur eða steikja ýsu í raspi er það sem ég hafði mest gaman af. Ég hef alltaf vitað að mig langaði til að verða kokkur, horfði á mat- reiðsluþætti sem vöktu áhuga minn á hvað það er mikið rokk og ról. Lætin og öskrin kveikja áhuga og fá mann til að langa í meira. Ég hef unnið í eldhúsi í níu ár og langar ekkert að hætta,“ segir Ísak. Ísak er þessa dagana með kokka- landsliðinu í Lúxemborg að keppa á heimsmeistaramótinu í mat- reiðslu eftir að hafa verið að æfa í eitt og hálft ár. „Á mótinu keppum við í tvenns konar greinum, ein er fyrir 110 manns í þriggja rétta. Ég og Gabriel Kristinn sjáum um forréttinn og erum mjög sáttir við okkar framlag. Önnur keppnin kallast Chef’s table en þar eru undirbúin fjögur „canapé“, fiskifat með viðeigandi sósum og meðlæti, vegan réttur, aðalréttur, eftirréttur og þrír „petit four“ en þar sé ég um „canapé-in“,“ segir Ísak. „Þessi mót eru alltaf skemmtileg og gaman að sjá aðrar þjóðir sýna hvað í þeim býr en á Ólympíu- leikum sem voru haldnir 2020 lentum við í þriðja sæti sem er besti árangur kokkalandsliðsins frá upphafi.“ Fyrst og fremst sjálfsagi Ísak vann keppnina Eftirréttur árs- ins og segir það vera mikinn heiður fyrir sig og fagið. „Ég er í keppnis- matreiðslu fyrst og fremst til að vinna en síðan er mjög gaman að sjá að keppnin hefur verið tekin upp á næsta stig, svo margir flottir keppendur og diskar.“ Ísak segir að huga þurfi að nokkrum hlutum til að geta töfrað fram sælkerarétt. „Það þarf metnað, frumleika og reynslu en fyrst og fremst þarftu sjálfsaga. Landsliðskokkurinn töfrar fram jólaeftirréttinn Ísak Aron sigraði í eftirréttakeppni Garra, fyrir Eftirrétt ársins 2022, og er þessa dagana úti í Lúxemborg með kokkalandsliðinu að keppa á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Sérrífrómasinn er guðdómlegur og með jólalegu ívafi. Sjálfsagi kemur þér mun lengra en hæfileikar, þú þarft að vilja setja inn vinnuna sem þarf til að þróa réttinn en ef það er ekki til staðar þá kemst maður ekki langt.“ Þegar Ísak er spurður hvort Eftir- réttur ársins sé jólaeftirrétturinn í ár svarar hann neitandi. „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er svarið nei, þessi eftirréttur tæki mig líklega tólf klukkustundir að fram- reiða frá grunni svo fólkið heima myndi ekki leggja það á sig. Mig langar hins vegar til að jólaeftir- rétturinn í ár sé sérrífrómas með kirsuberjasósu en ég luma á góðri uppskrift að því sem nær allir geta hent í.“ Aldrei stressaður í matargerð Á aðventunni reynir Ísak að hafa það notalegt með sínum nánustu. „Ég reyni að slaka á með vinum og fjölskyldu, fara í göngutúra, stunda heilsurækt eða jafnvel liggja undir teppi og horfa á mynd. Ég fer í sem flest fjölskylduboð en passa mig að verða aldrei stressaður í kringum matinn,“ segir hann og brosir. Bernskujólin eru minnisstæð. „Ég fór alltaf vestur á Súganda- fjörð um jólin en það var eitthvað við það að flýja stressið í borginni og komast í fallega náttúruna og kyrrðina sem ríkir á Suðureyri. Það er svo gott að „reboota“ sig, ef ég fæ að sletta smá, og slaka á þar sem hugurinn fær hvíld,“ segir Ísak. „Það sem er eftirminnilegast eru skötuboðin sem amma og afi héldu á Hjallavegi 19 á Suður- eyri, að sjá alla fjölskylduna koma saman og fylla húsið með yndis- legu lyktinni af skötu var eitthvað svo jólalegt.“ Aðspurður segir Ísak að ananas- frómasinn hjá ömmu hans hafi ávallt slegið í gegn en síðastliðin jól hefur hann verið að prufa sig áfram og gera bara það sem hann langar í. „Kannski byrjar maður með einhverja hefð á næstunni en skata á Þorláksmessu og hangikjöt á jóladag breytist aldrei,“ segir Ísak að lokum og sviptir hér hulunni af ljúffengum frómas sem allir eiga að geta gert fyrir hátíðirnar. Sérrífrómas 150 g eggjarauður 145 eggjahvítur 200 g sérrí 100 g súkkulaðispænir 200 g sykur 16 g gelatín-blöð 600 g rjómi Eggjarauður og sykur er þeytt saman þar til sykur hefur verið leystur upp. Gelatínblöð er sett í bleyti í 5 mínútur í köldu vatni, soðið upp á sérrí og gelatínblöð- um pískað saman við og því síðan hellt í eggjarauðurnar og hrært vel saman. Rjómi er þeyttur og í ann- arri skál eru hvítur þeyttar. Eggja- hvítur eru hrærðar varlega saman við eggjarauður og sykur með sleif, næst á eftir er þeyttum rjóma hrært varlega saman við og síðast er súkkulaðispæni bætt við. Sett í skál og leyft að stífna í 5 tíma. Kirsuberjasósa 450 g kirsuber án kjarna (frosin eða fersk) 100 g sykur 100 ml sykur 15 g sítrónusafi 10 g maizena Kirsuber ásamt sykri og vatni er sett í pott og leyft að hægsjóða í 7 mínútur, sítrónusafi er kreistur út í og suða látin koma upp. Maizena er bætt við og hrært vel saman, leyft að kólna og hellt síðan yfir sérrífrómasinn og borið fallega fram. n 4 kynningarblað A L LT 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.