Fréttablaðið - 26.11.2022, Side 68

Fréttablaðið - 26.11.2022, Side 68
Hamranes M3 - breyting á aðalskipulagi Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 23. nóvember 2022 að auglýsir skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í breytingu á greinargerð þar sem heimiluð er fjölgun íbúða úr 1500 í 1900 auk 80 þjónustueininga á hjúkrunarheimili. Skipulagslýsingin verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6 og á umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2, frá 26.11 – 17.12.2022. Einnig er hægt að skoða gögnin á hfj.is/skipulag. Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagslýsinguna á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega í þjónustuver að Strandgötu 6 eigi síðar en 17.12. nk. Auglýsing um skipulag Hafnarfjarðarbær hafnarfjordur.is Hafnarfjarðarbær bt. umhverfis- og skipulagssvið Strandgötu 6 220 Hafnarfjörður S Tilnefning í Æskulýðsráð Stjórnarráð Íslands Mennta- og barnamálaráðuneytið Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar eftir tilnefningum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka um fulltrúa í Æskulýðsráð fyrir tímabilið 2023-2024 sbr. reglugerð nr. 1088/2007. Tilnefna skal konu og karl til setu í Æskulýðsráði til tveggja ára og í tilnefningunni skal koma fram vilji tilnefndra einstaklinga til að taka að sér setu í ráðinu. Með tilnefningu skal fylgja yfirlit yfir reynslu og þekkingu tilnefndra á starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðssamtaka og yfirlýsing um að viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Ráðuneytið hefur hafið undirbúning á endurskoðun æskulýðslaga í samræmi við stefnu ráðuneytisins um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna. Endurskoðun laganna verður unnin í samstarfi við Æskulýðsráð á tímabilinu. Tilnefningar þurfa að berast mennta- og barnamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, bréflega í síðasta lagi fimmtudaginn 15. desember 2022. Ábúendur og rekstraraðilar að ferðaþjónustunni í Fossatúni í Borgarbyggð hafa ákveðið að kanna möguleika á sölu á einkahluta- félaginu Fossatún ehf. Allt umhverfi, aðstaða og húsakostur hefur verið sérhannað. Vel hefur tekist til með að skapa ferðaþjónustu- rekstrinum sérstöðu og gera Fossatún að eftirsóttum áfangastað fyrir erlenda sem og íslenska ferðamenn. Miklir möguleikar eru á hagkvæmri uppbyggingu glæsilegs reksturs á traustum grunni. Nánari upplýsingar gefur Ólafur Steinarsson í síma 822-7988 eða á netfanginu olafur@steinarsson.is Einstakt fjárfestingartækifæri í ferðaþjónustu í Borgarbyggð Fjármála- og efnahagsráðherra hefur afhent óbyggða- nefnd kröfur íslenska ríkisins um þjóðlendur sam kvæmt lagaheimild nefndarinnar til að taka til meðferðar tiltekin svæði í lands hlutum þar sem málsmeðferð hafði áður farið fram að ákveðnum skil yrðum uppfylltum. Um er að ræða sömu kröfur og ráðherra gerði áður í janúar 2021 en eftir það var skipuð sérstök óbyggðanefnd til að annast málið sem ákvað að hefja málsmeðferð að nýju. Óbyggðanefnd kallar nú eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta. Kröfu lýs ing ráðherra og kort eru á vefnum obyggdanefnd.is/serstok og fáanleg á skrif stofu nefndarinnar. Upplýsingar um málsmeðferð og leið bein ingar um frágang kröfulýsinga fást einnig á vefsíðu og skrif stofu óbyggðanefndar. Skorað er á þá sem telja til eignarréttinda innan við komandi þjóðlendukröfusvæða íslenska ríkisins að lýsa kröfum skriflega í síðasta lagi 28. febrúar 2023 fyrir óbyggðanefnd, Skuggasundi 3, 101 Reykja vík, postur@obyggdanefnd.is. Svæðin eru eftirfarandi en upplýsingar um afmörkun eru á vefsíðu óbyggðanefndar: 1. Svæði við vesturmörk Skriðu- klausturs og Valþjófsstaðar; 2. nyrsti hluti Grímólfsártungu; 3. Kverkártunga; 4. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar afréttar Torfufells, Hólsgerðis og Úlfár; 5. svæði við norðurmörk þjóðlendnanna Vaskárdals, Almennings og Bakkasels; 6. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar Eyvindar staðaheiðar; 7. svæði við norðurmörk þjóð- lend unnar Hraunanna; 8–9. svæði við vesturmörk og norðurmörk þjóðlendunnar Skrapatunguafréttar; 10. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar Auðkúluheiðar; 11. svæði milli Kornsár og Kleppukvíslar; 12. svæði við austur- mörk Hítardals; 13. svæði við norðausturmörk Svarfhóls; 14. svæði austan og sunnan Drangajökuls. Að lokinni rannsókn úrskurðar óbyggðanefnd um kröf- ur málsaðila. Leiði rannsóknin í ljós að einhver kunni að telja til eignarréttinda án þess að hafa lýst kröfu verður viðkomandi gefinn kostur á því en m.a. verður athugað hvort fyrri kröfugerð þykir gefa tilefni til þess. Áskorun frá óbyggðanefnd Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) – LEIGUHÚSNÆÐI 221127 – Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óskar eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) . Miðað er við 5 ára leigutíma, húsnæði fullbúið til notkunar án lauss búnaðar. Gerð er krafa um staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu. Það skal vera gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði. Húsrýmisþörf er áætluð 800-850 fermetrar. Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is mánudaginn, 28. nóvember 2022. Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leigu- verðs, stærð húss og skipulags þess út frá starfsemi HTÍ, ör- yggis, afhendingartíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum. Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heyrnar- og talmeinastöð - leiguhúsnæði skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is Fyrirspurnarfrestur rennur út föstudaginn 2. desember en svarfrestur er til og með þriðjudags 6. desember. Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is eigi síðar en kl. 13:00, mánudaginn 12. desember. Merkja skal tilboðin; nr. 221127 – Heyrnar- og talmeinastöð Íslands – Leiguhúsnæði Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr. Samkomugerði, Eyjafjarðarsveit – auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 22. september 2022 sl. að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir frístundarbyggð í landi Samkomugerðis í auglýsingu skv. 31. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulagstil- lögunni felst að skilgreint verði svæði fyrir frístundarbyggð í landi Samkomugerðis. Bætt er við svæði fyrir frístundarbyggð F17. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir tveimur frístundahúsum og er byggingarheimild fyrir einu húsi á svæðinu því óráðstafað að sinni. Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 25. nóvember 2022 og 6. janúar 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á gera athugsemdir við skipulagstillögurnar til föstudagsins 6. janúar 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is. Skipulagsfulltrúi Eyrarland, Eyjafjarðarsveit – auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 22. september 2022 sl. að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir íbúðarbyggð í landi Eyrarlands í auglýsingu skv. 31. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulagstillögunni felst að byggingarheimildir á íbúðarsvæði ÍB14, þar sem í gildandi aðal- skipulagi er gert ráð fyrir 10 íbúðarhúsum, eru auknar í 15 hús. Deiliskipulagstillagan tekur til tíu íbúðarlóða á íbúðarsvæði ÍB14, á spildu austan Veigastaðavegar og sunnan íbúðarbyggðarinnar Kotru. Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 25. nóvember 2022 og 6. janúar 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á gera athugsemdir við skipulagstillögurnar til föstudagsins 6. janúar 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is. Skipulagsfulltrúi 16 ATVINNUBLAÐIÐ 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.