Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 94

Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 94
Íslendingar erlendis láta ekki íslenska smjörið vanta í elda- mennsku jólanna. Þá er mikið pantað af laufabrauði, Ora- baunum og konfekti. Nammi. is er einn stærsti útflytjandi á íslenskum vörum og segir Sófus Gústavsson að önnur kynslóð fastakúnna sé farin að panta – jafnvel þau sem hafi aldrei komið til Íslands. Við erum með mikið af föstum kúnnum. Nammi.is var stofnað fyrir einhverjum 24 árum og það sem við erum að sjá núna fyrir þessi jól er að önnur kynslóð er byrjuð að versla við okkur. Sú kynslóð hefur alist upp við íslenskt sælgæti en sum þeirra hafa aldrei komið til Íslands,“ segir Sófus Gústavsson, eigandi nammi. is, en jólavertíðin þar á bæ er löngu hafin. Íslendingar erlendis þurfa að vera búnir að panta sitt fyrir löngu til að halda gleðileg jól. Og engin jól eru gleðileg nema jólasteikin fái að liggja aðeins í íslensku smjöri. „Það er númer eitt, tvö og þrjú. Það sem er þó merkilegt er að græna smjörið, sem er ósaltað, selst meira,“ segir hann. Hann segir að topp- listinn yfir það sem Íslendingar erlendis séu að kaupa sé frekar einfaldur og hljómi eins og innkaupalistinn hjá venjulegri fjölskyldu sem fari í Nettó fyrir jólin. „Topplistinn er auðveldur. Ef við Ómissandi að elda upp úr íslensku smjöri Sófus Gústavsson og fjölskyldufyrirtæki hans, nammi.is, hefur verið til í 24 ár og sendir ógrynni af íslenskum mat, nammi og bjór til Íslendinga erlendis. Fréttablaðið/ernir Jólabjóralagerinn var tvöfaldaður í ár hjá Sófus og félögum enda seldist allt upp í fyrra á nokkrum klukkutímum í fyrra. Það er lítið eftir. Konfektið er mikið sent um allan heim enda fátt betra en að stelast í einn jólamola. Það jafnast ekkert á við að elda upp úr íslenska smjörinu – jafnvel þótt það sé erlendis. tökum kjötið burt af listanum, sem var nýlega bannað, þá er topplistinn hjá okkur laufabrauð og malt og appelsín, grænar baunir og íslenska smjörið. Svo er það konfektið frá Nóa Sír- íus og síldin er að koma sterk inn,“ segir Sófus. Það sem stingur í stúf þegar topp- listinn er skoðaður aðeins neðar er harðfiskur sem fáir tengja við sem nauðsynlegan hlut um jólin. „Per- sónulega er ég ekki með harðfisk heima hjá mér um jólin en Íslend- ingar erlendis virðast elska harð- fiskinn.“ Þótt konfektið sé vinsælt núna er Hraun og lakkrísinn frá Góu vinsælt allt árið. „Góa er alltaf með sígildar vörur og þeirra vörur eru vinsælar allt árið. Fólk er að kaupa sitt lítið af hverju úr nammideildinni en helst núna er konfektið.“ Sófus bendir á að tugþúsundir Íslendinga búi erlendis, þar af um 10–15 þúsund í Bandaríkjunum. Hann sendir mest til Bandaríkjanna en einnig til Kanada og Evrópu. „Það er erfitt að senda til Suður-Ameríku til dæmis. Mexíkó er alveg lokað og eitt og eitt land leyfir ekki neitt, eins og Nýja-Sjáland.“ Búðingur ómissandi Fréttablaðið hafði samband við nokkra Íslendinga sem búa erlendis. Þeir áttu það sameiginlegt að kaupa Þrist, Draum, Appolólakkrís og Hraun yfir árið. Þó voru nokkrir með sínar sérþarfir, eins og pítu- sósu, kókómjólk og sumir jafnvel pöntuðu mexíkó-ost. Nammið frá Helga í Góu selst vel allt árið. Hangikjötið með uppstúf og grænum baunum og rauðkáli. Það eru jólin í þessari setningu. Fyrir jólin breytast pantanirnar og verða líkari því sem þekkist hér á Fróni. Þá er pantað hangikjöt, laufa- brauð, malt og appelsín, grænar Ora-baunir og Royal-búðingur. Þá er einnig vinsælt íslenska súkkulaðið því allir viðmælendur áttu það sam- eiginlegt að panta suðusúkkulaði og rjómasúkkulaði en aðrir bættu jafnvel súkkulaðispæni við. Þá er fátt betra en að leyfa sér súkkulaði- rúsínur til hátíðarbrigða. n Drykk- ur jólanna ferðast um allan heim. Laufabrauð. Auðvitað er það pantað. Engin jól án þeirra. Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas @frettabladid.is 50 Helgin 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.