Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 104

Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 104
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Helgason Sörlaskjóli 28, Reykjavík, lést 13. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir fær Þorrasel, dagdeild aldraðra. Gunnlaugur Jónsson Katarina Alexandra Jónsson Sigríður Helga Jónsdóttir Ingibjörg Guðrún Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Kristín Ingunn Haraldsdóttir Kiddý í Haga, lést fimmtudaginn 17. nóvember á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Patreksfirði. Útför hennar fer fram frá Hagakirkju föstudaginn 2. desember klukkan 14. Útförinni verður streymt og má nálgast hlekk á youtube.com/bit.ly/hagakirkja. Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat Björg G. Bjarnadóttir Eiríkur Jónsson Margrét Á. Bjarnadóttir Kristján Finnsson Jóhanna B. Bjarnadóttir Árni V. Þórðarson Hákon Bjarnason Birna J. Jónasdóttir J. Kristín Bjarnadóttir Haraldur Bjarnason María Úlfarsdóttir Gunnar I. Bjarnason Regína Haraldsdóttir og ömmubörn Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, Svava Berg Þorsteinsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Eir 11. nóvember í faðmi fjölskyldunnar. Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju í Reykjavík, þriðjudaginn 29. nóvember klukkan 13. Jónas Ágúst Ágústsson Halldóra Guðríður Árnadóttir Sólveig Björk Ágústsdóttir Óskar Ísfeld Sigurðsson Þorsteinn Valur Ágústsson Íris Dröfn Heiðudóttir ömmubörn og langömmubörn Elskulegur faðir, barnsfaðir, stjúpfaðir, stjúptengdafaðir og stjúpafi, Haraldur Sigþórsson umferðarverkfræðingur, lést á Landspítalanum í Fossvogi 21. nóvember. Útför verður frá Grafarvogskirkju þann 14. desember kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á SEM samtökin. Sigþór Haraldsson Esther Hlíðar Jensen Inga María Hlíðar Thorsteinson Egill Þór Jónsson Aron Trausti Egilsson Sigurdís Egilsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Lilja Líndal Gísladóttir Leynisbraut 10, Akranesi, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, þriðjudaginn 15. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 1. desember klukkan 13. Fjölskyldan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til starfsfólks Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða. Hjörtur Márus Sveinsson Gísli Baldur Mörköre Kristinn Líndal Jónsson Fanney Þórðardóttir Márus Líndal Hjartarson Þura Björk Hreinsdóttir Ólafur Elí Líndal Hjartarson Berglind Björk Gunnarsdóttir ömmubörn og langömmubörn Hjartkær mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma og langalangamma, Valdís Þorsteinsdóttir Lóa fyrrum stöðvarstjóri Pósts og síma í Hrísey, lést á Dvalarheimilinu Dalbæ Dalvík miðvikudaginn 23. nóvember. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 6. desember kl. 13.30. Þórdís Björg Alfreðsdóttir Steingrímur Sigurðsson Konráð Þorsteinn Alfreðsson Guðbjörg Ingileif Jónasdóttir Sigurður Sveinn Alfreðsson Sólborg Friðbjörnsdóttir Sigurjón Freyr Alfreðsson Margrét Kristmannsdóttir Blængur Elvar Alfreðsson Þórdís Þorvaldsdóttir Kristín Anna Alfreðsdóttir Ásgeir Stefánsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Áslaug Bernhöft lést á Hrafnistu við Sléttuveg föstudaginn 18. nóvember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 1. desember klukkan 13. Ólafur Þór Jónsson Þórey Björk Þorsteinsdóttir Þórður Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu, systur, mágkonu og frænku, Kolbrúnar Þórarinsdóttur sjúkraliða, sem lést 8. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Dagný Skúladóttir Sif Hrafnsdóttir Guðný Skúladóttir ömmubörnin Kári, Kormákur og Lovísa systkini, makar og fjölskyldur Pétur Þorsteinsson óháða- safnaðarprestur leiðir að vanda tilhleypingateiti guðsgeldinga í prestssetrinu í dag. arnartomas@frettabladid.is Á morgun, fyrsta sunnudag aðventunn- ar, hefst nýtt kirkjuár með tilheyrandi jólaföstu. Pétur Þorsteinsson, prestur í Óháða söfnuðinum, hefur þann sið á að á gamlársdegi kirkjuársins býður hann í tilhleypingateiti í prestssetrinu fyrir svokallaða guðsgeldinga – þá sem eru af einhverri ástæðu ógiftir og ekki í sam- bandi. „Við vorum einhvern tímann í Þórs- mörk fyrir svona þrjátíu til fjörutíu árum í byrjun aðventunnar. Í fram- haldi voru menn að kvarta undan því að guðsgeldingarnir væru aldrei að hittast,“ útskýrir Pétur. „Ég hef nú boðið þessum guðsgeldingum í veislu til mín ár hvert síðan þá.“ Í veislurnar mætir iðulega fjölbreyttur hópur fólks til að smakka á kökum og kaffi. „Ég þekki ekki alla sem koma og það er ákveðinn léttleiki yfir þessu öllu saman,“ segir Pétur. „Þetta guðsgeldingagengi sem hingað kemur getur svo horft á hina og skoðað hvert annað.“ Tilhleypingateitið svokallaða er til- komið af því að hrútum í sveitinni er hleypt út á þessum tíma líkt og Pétur hleypir guðsgeldingunum út meðal fólks. Gestabókin til bjargar Hefur eitthvað orðið úr fundum fólks sem hittist í þessum teitum? „Já, já! Það er hér fólk sem ég gifti til að mynda og eiga þrjú undaneldi í dag, en þau hittust einmitt í einu boðinu,“ segir Pétur stoltur. „Svo hafa nú menn hist þar fyrir utan. Ég man eftir einum sérstak- lega sem var svo orkumikill. Hann kom daginn eftir því hann náði ekki réttu nafni á stelpunni sem hann var að tala við svo hann fékk að koma og skoða í gestabókina!“ Gestabókin bjargaði þannig verðandi ást frá glötun. Pétur býst við að kvöldið gæti ílengst aðeins fram undir morgun þar sem fólk sé orðið hrætt við það sem hann kallar Fullukallafélagið. „Það er orðin ansi mikil orka og elja í því, svo menn halda sig kannski heima fyrir og sleppa því að fara niður í bæ,“ segir hann. „Hér elska allir friðinn og strjúka kviðinn!“ n Guðsgeldingagengið fagnar saman Pétur staðfestir að fólk hafi fundið ástina í teitunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir og amma, Þórdís Erlingsdóttir Svölutjörn 46, Innri-Njarðvík, varð bráðkvödd á heimili sínu, föstudaginn 18. nóvember. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, fimmtudaginn 1. desember klukkan 15. Jón Valgeirsson Ívar Örn Jónsson Margrét Klara Þórisdóttir Jóhanna Sigurðardóttir Alexander Agnar Hersisson og París Möller Ívarsdóttir Ég þekki ekki alla sem koma og það er ákveðinn léttleiki yfir þessu öllu saman. 60 Tímamót 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.