Fréttablaðið - 26.11.2022, Síða 112

Fréttablaðið - 26.11.2022, Síða 112
JOEBOXER.IS | KRINGLAN 4-12 (1. HÆÐ) | 103 REYKJAVÍK | S. 5332009 Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur túlkar líf formóður sinnar, Sigríðar Jónsdóttur, í ljóðabálknum Urtu. fréttablaðið/ernir Urta er fjórði ljóðabálkur Gerðar en áður hafa komið út bálkarnir Blóð- hófnir, Drápa og Sálumessa. kápa/forlagið Urta er nýr ljóðabálkur eftir Gerði Kristnýju. Í honum sýnir hún fádæma tök á íslensku tungumáli í skorinortum orðum sem lýsa lífsbaráttu manna og dýra á árum áður. ragnarjon@frettabladid.is Nýjasta bók Gerðar Kristnýjar, Urta, segir frá konu sem tekst á við lífsbaráttuna og missi hér á Íslandi fyrir um hundrað árum síðan. „Samband mannsins við nátt- úruna og samband mannsins við dýrið,“ segir Gerður Kristný um umfjöllunarefnið. „Við erum í raun undirseld sömu kröftum og sömu lífsbaráttunni. Svo lifum við núna á umbrotatímum. Það er margt að breytast, eins og hugmyndir okkar um tungumálið og þjóðerni og kyn. Þá getur verið rosalega gott að skríða inn í fortíðina og dvelja þar,“ segir Gerður. „Þú sérð líka þegar litið er yfir hvað verið er að skrifa núna, þá eru rithöfundar mjög mikið í fortíðinni. Bæði í ár og í fyrra og ég held að við séum bara aðeins að bíða af okkur. Við erum í vari á meðan umbrotin ganga yfir og á meðan við lærum inn á nýjan veruleika.“ Hófst með drepsótt Bókina byggir hún á langalang- ömmu sinni, Sigríði Jónsdóttur, sem fæddist árið 1845 og bjó á Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði á Ströndum. Um tilurð bókarinnar segir Gerður að eins og svo margt sem varð til á tímum farsóttarinnar hafi ferlið byrjað með veikindum. „Það brast á með drepsótt hjá mér og þá lögðust öll ferðalög niður en ég var vön að fara í upplestrar- ferðir til útlanda og geta lesið upp í skólum og stofnunum.“ Í fyrstu bölvaði hún faraldrinum en byrjaði svo að sjá í þeim ljósa punkta. „Fyrst var þetta frekar leið- inlegt ástand en svo áttaði ég mig á því að nú gat ég loksins gert allt sem ég hafði ekki haft tíma til að gera.“ Hún hafi brátt treyst sér í ferðalög að nýju sem leiddi til heimsóknar á kunnuglegar slóðir. „Ég fékk inni í íbúðinni fyrir ofan Sparisjóð Strandamanna á Hólma- vík og var þar í tíu daga. Ákvað þá að yrkja loksins um langalangömmu mína. Hún átti nítján börn og var ljósmóðir og hún missti fótinn og hún missti manninn sinn, ásamt því að missa nokkur börn.“ Gerður segir að ein sagan um for- Lífsbarátta manna og dýra á hjara veraldar móðurina hafi verið stórfurðuleg. „Ég hafði heyrt þessa furðulegu sögu af henni sem mér finnst óskilj- anleg. Að einhvern tímann kom hún heim til sín og sagðist ekki geta lengur unnið sem ljósmóðir vegna þess að hún hefði hjálpað urtu að kæpa,“ segir hún. Selir voru áður álitnir viðsjár- verðar og dularfullar verur sem oft rötuðu í þjóðsögur. Gerður segir þó ekki ljóst hvers vegna björgun- araðgerðin hafi leitt til þess að hún ætlaði að segja starfi sínu lausu. „Þetta er eitthvað tengt þjóðsög- unum um seli, að þeir séu óhreinar verur og að maður ætti ekki að koma of nálægt þeim. Nema þetta hafi bara verið hennar leið til að segja að hún væri þreytt og lúin og fyndist bara vera nóg komið. Nú gætu aðrar ljósmæður tekið við héraðinu,“ segir hún og bætir við að selir séu gæddir eiginleikum sem mannfólkið tengi við. „Það er talað um að selirnir hafi augu drukknaðra sjómanna og einnig er sagt að selurinn hafi mannsaugu. Við finnum alltaf ein- hverja tengingu við selinn.“ Harðneskjulegar aðferðir Þessi tenging okkar við selinn hafi þó ekki stoppað okkur frá því að hafa nytjar af dýrunum, enda geti allt verið hey í harðindum. „Ég las upp á Sauðfjársetrinu á Ströndum um daginn. Þar hitti ég mann sem sagði að maður þyrfti að herða sig fyrir selaveiðarnar. Þá hugsaði ég hvað hann ætti nú eigin- lega við en svo segja svona menn yfirleitt aldrei neitt meira. En hann sagði mér að þær veina, mömmurn- ar. Kóparnir festast í netinu og voru oft lifandi þegar komið var að. Mæð- urnar eru þarna nálægt þegar komið er að og þær veina þegar þeim er slátrað,“ segir Gerður og bætir við að þær aðferðir sem notaðar voru áður þyki í dag nokkuð harðneskjulegar. „Bændurnir voru vanir að slátra kópunum með árunum. Mamma fór einu sinni með pabba sínum en sagðist aldrei ætla aftur. Vegna þess að kóparnir fundust svo oft lifandi og þá var bara árin gripin.“ Gerður segir að hennar upplifun af selum sé allt önnur. Hún lýsir þeim sem forvitnum og fullum af persónuleika. „Ég sé selina meðal annars í Skerjafirðinum og þeir eru líka sjáanlegir á Seltjarnarnesinu. Þeir eru bara svo forvitnir og það er svo mikill karakter í þeim. Þeir mæta svona og kíkja á hvað sé í gangi. Svo ef maður fer niður í fjöru og syngur aðeins þá mæta þeir strax.“ n Hel  vindur sér inn um hélaðar dyr dvelur lengi velur stelpu gerir frostmark á fölt enni felur mér gröfina gapandi kok (úr Urtu)  Það er talað um að selirnir hafi augu drukknaðra sjómanna og einnig er sagt að selurinn hafi manns- augu. Við finnum alltaf einhverja tengingu við selinn. 68 Menning 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttabLaðiðmenninG FréttabLaðið 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.